Heilsuvernd - 01.05.1947, Blaðsíða 12
4
HEILSUVERND
Og með því að liæli þetta á að standa opið öllum lands-
lýð, hvort sem menn aðhyllast stefnu félagsins eða ekki,
þá er eðlilegt, að félagið leiti til almennings um fjár-
framlög og aðra aðstoð.
Á tímum þess peningaflóðs, sem streymir yfir land-
ið, ætti víða að vera til skilningur á því, að beztu vext-
ina af peningum sínum fái menn ekki ætíð með því að.
leggja þá inn i banka eða í gróðafyrirtæki. Enginn get-
ur ávaxtao fé sitt betur en með því að leggja það í fyrir-
tæki til þjóðþrifa og mannheilla. Og ég þekki ekkert mál
svo aðkallandi, svo guðsþakkarvert og eins líklegt til
að gefa þúsundfaldan arð í aukinni heilbrigði og ham-
ingju og þetta heilsuhælismál.
„Hvað vannst þú drottins veröld til þarfa?
Þess verður þú spurður um sólarlag“,
segir skáldið. Ég býst við, að enginn sleppi við að svara
þessari spurningu að lokum.
Vilt þú, ungur eða gamall, karl eða kona, rétta oss hjálp-
arhönd til að koma þessu velferðarmáli í framkvæmd
og stuðla þannig að þvi að bjarga lífi og heilsu með-
bræðra þinna eða sjálfs þín? Eitt er víst, að enginn fer
með þá fjármuni, er mölur og ryð granda, er hann flyt-
ur búferlum héðan. Og enginn getur vitað, nema hann
sjálfur eða hans nánustu njóti ávaxtanna af þeim skild-
ingum og því liðsinni, sem hann leggur þessu máli.
Ég vænti góðs skilnings og góðra undirtekta, ekki að-
eins af þeim, sem hafa starfað af áhuga í félagi voru,
heldur og af fjölda óþekktra vina og velunnara. Og ég
sný máli mínu til allra hugsandi manna og kvenna, sem
þessar línur lesa:
Leggið oss fjárhagslegt lið, eftir því sem efni, ástæður
og áhugi yðar á málinu blæs yður í brjóst. En leggið o&s
einnig til góðar og styrkjandi hugsanir. Þær eru líka
mikils virði.
Minnist þess, að HEILSUVERND ER BETRI EN
NOKKUR LÆKNING. Jónas Kristjánsson.