Heilsuvernd - 01.05.1947, Síða 13
Jónas Kristjánsson:
í heimsókn hjá dönsknm kvenlækni
Er ég hafði lokið erindum mínum i Stokkhólmi, en
þau voru að kynnast hinni stórmerkilegu Waerlands-
hreyfingu, hélt ég' til Danmerkur. Aðalerindið þangað var
að heimsækja dr. Kirstine Nolfi í hinu nýja lieilsuliæli
hennar Humlegaarden.
Krabbamein læknað með mataræði. Einn vina minna,
Björn kaupmaður Kristjánsson frá Sauðárkróki, hinn
fyrsti hvatamaður að stofnun Náttúrulækningafélags ís-
lands, hafði fært mér, auk fleiri bóka, lítið kver eftir dr.
Kirstine Nolfi um „þýðingu náttúrlegrar liráfæðu fyrir
heilbrigða og sjúka“. Ég las kver þetta þegar i stað og
þótti það Iiarla merkilegt. Höfundurinn, sem er danskur
kvenlæknir, segir þar frá því, að henni hafi tekizt að
lækna sjálfa sig af krabbameini í brjósti með því að lifa
eingöngu á náttúrlegri hráfæðu, aðallega úr jurtaríkinu,
auk mjólkur og eggja. Þetta voru mikil tíðindi og al-
gerð nýjung, því að háskólalæknisfræðin og læknar al-
mennt þekkja engin önnur ráð við krabbameini en hnif-
inn, radium og röntgengeisla, sem gefa lélegan árangur,
og þeir viðurkenna ekki, eða neita þvi jafnvel ákvcðið,
að krabbamein standi í nokkru sambandi við mataræðið.
Svo að segja allar rannsóknir háskólalæknisfræðinnar
hafa snúizt um það að finna einhverja hakteríu eða huldu-
sýkil (vírus), sem orsaki sjúkdóminn, rannsaka efna-
breytingar i hinum sjúku vefjum, reyna að finnna með-
ul til að eyða æxlunum o. s. frv. Við þetta liafa hundruð