Heilsuvernd - 01.05.1947, Page 14
6
HEILSUVERND
og þúsundir lækna og vísindamanna unnið áratugum
saman og' varið til þess milljónum og aftur milljónum
króna, án þess að menn séu fyrir það nokkru nær um
orsakir krabbameinsins, vörn gegn því eða lækningu á
því. Og svo skyldi það koma upp úr kafinu, að bægt sé
að lækna það með ekki flóknari ráðum en þeim að breyta
um mataræði og lifnaðarliætti, og fyrirbyggja það á
sama hátt.
Undirtektir lækna. I kveri sínu segir dr. Nolfi sögu bar-
áttu sinnar við heilsuleysi og síðast við krabbameinið.
Frásögn bennar er birt i þýðingu annarsstaðar í lieftinu.
Sumir kynnu að vilja efast um, að um krabbameinsæxli
Iiafi verið að ræða, en eftir allri lýsingunni að dæma
tel ég það ekki geta orkað tvímælis.
Saga dr. Nolfi er ekki aðeins merkileg fyrir þann sig-
ur, sem bún vinnur á erkióvini mannkynsins, krabba-
meininu, og' þá allsherjar heilsuhót, sem liún hlýtur jafn-
framt. Hún er ekki síður eftirtektarverð fyrir það, hverj-
ar undirtektir hún fær hjá stéttarbræðrum sínum,
dönsku læknunum. Þeir skella ekki einasta skollaeyrun-
um við sögu hennar, heldur meina þeir henni blátt áfram
að skýra frá þessari lækningu á læknafundum og í mál-
gagni lækna. Og nú síðast er hún ofsótt fyrir það, að
sjúklingur með sykursýki, sem enginn læknir lmgði líf
en dr. Nolfi tók við nauðug fyrir þrábeiðni, andaðist í
sjúkrahúsi eftir skamma dvöl i lieilsidiæli hennar.
Ég liefi alltaf talið víst, að hver maður mundi gleðj-
ast yfir því, af einhverjum tækist að brjóta á bak aftur
vald hins ægilega óvinar, krabbameinsins. Og læknar
ættu manna fyrstir að fagna slíkum fréttum. Ég hefi
scm læknir svo oft orðið var þeirrar skelfingar, sem grip-
ur fólk, er það óttast eða þykist sannfært um, að krabba-
mein hafi tekið sér bólfestu í líkama þess.
Orsakir krabbameins. Og ég hefi fyrir löngu þótzt liafa
fengið vissu fyrir því, að ónáttúrleg og dauð fæða, svo
sem hvítur hveitisalli, hvítur sykur, hvítliefluð hrisgrjón,