Heilsuvernd - 01.05.1947, Síða 18

Heilsuvernd - 01.05.1947, Síða 18
10 HEILSUVERND gera í vatnsbaði með líkamshita en ekki við eldhita, sem mnndi skemma liana. Dægrastyttingar. Dr. Nolfi sefur undir beru lofti vet- ur og sumar, úti á yfirbyggðri verönd, enda er þarna skjólgott og góðviðrasamt. Fósturdóttir hjónanna, Odd- ný að nafni, prýðisstúlka af íslenzkum ættum, annast um hús- og hælisstjórn með fósturmóður sinni af liin- um mesta skörungsskap, og hefir eftirlit með útileikfimi og sjóböðum. Flesta daga, þegar gott var veður, tóku gest- ir sér ferðir út um byggðina, annaðhvort gangandi eða akandi. En umhverfið er liið fegursta og vegir góðir. Eitt kvöldið fórum við til Krónborgar, þar sem norsk- ur leikflokkur lék harmleikinn Hamlet eftir Sliakespeare undir beru lofti. Var fremur svalt þetta kvöld, en ég lield, að fæstir hafi fundið til svalans, vegna þess live vel menn fylgdust með leiknum, enda var leikið með af- brigðum vel. Annaðhvert kvöld koniu húshændur og gestir saman i stórri gestastofu. Var þar sungið, lesið upp og ræður fluttar um ýms mál. Flutti ég' þar að beiðni dr. Nolfi þrjú stutt erindi urn ísland, um liáttu íslendinga, matar- æði, heilhrigði og' sjúkdóma. Ég varð ekki annars var en hlýleika i garð Islendinga þar og annarstaðar, er ég kom. Lifandi fæða. Ég átti daglega viðræður við dr. Nolfi. Barst talið eitt sinn að því, livort lienni liefði ekki fallið illa undirtektir læknastéttarinnar dönsku. Hún kvað svo hafa verið i fyrstu, en nú stæði sér alveg á sama um títuprjónastungur þeirra. Hún kvaðst forðast harðar og fjandsamlegar deilur, að þeim væri enginn ávinningur. Dr. Nolfi leggur alveg sérstaka áherzlu á það, að fæð- an sé lifandi og engu svipt af sínum góðu og náttúrlegu kostum. Þessvegna sést þar aldrei á borðum nein mun- aðarvara eða tízkumatur, svo sem hvítt brauð eða hvít- ur sykur eða fínir og gómsætir réttir. Einu sætindin er hunang, sem notað er til smekkbætis.

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.