Heilsuvernd - 01.05.1947, Qupperneq 21

Heilsuvernd - 01.05.1947, Qupperneq 21
Dr. Kirstine Nolfi: KRABBAMEIN MEÐ MATARÆÐI. Ég útskrifaðist sein læknir árið 1907 og vann síðan i sjúkrahúsum um 12 ára skeið, síðustu 3 árin sem fyrsti aðstoðarlæknir við þekkt sjúkrahús í Kaupmannahöfn. Sjúkraliúsafæðið reyndist mér ekki betur en svo, að eftir 6 ár var ég komin með blæðandi magasár. Árið 1926 verður þess fyrst vart i Danmörku, að menn fara að lifa eingöngu á ósoðnum mat — eða á hráfæði. Ég gerði tilraun með þetta mataræði á sjálfri mér og varð gott af. Og næstu 14 árin borðaði ég mikið af hrá- meti, en samt ekki nóg, eins og síðar kom í ljós, því að jafnframt horðaði ég allan venjulegan mat. Upp úr áramótunum 1940 og 1941 tók ég að finna til þreytu og slappleika. Mér fór að förlast minni, og það svo, að ég endurtók stundum sömu orðin við sjúkl- inga mína með fárra mínútna millibili. Ég var orðin þung á mér og völt í spori, og eitt sinn datt ég' og fótbrotnaði af þessum sökum. Um vorið, þegar ég fór að vinna í garði mínum að vanda, gat ég ekki unnið nema stutta stund í senn, var þá orðin þreytt og varð að hvíla mig. Þessi sí-

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.