Heilsuvernd - 01.05.1947, Side 32

Heilsuvernd - 01.05.1947, Side 32
24 HEILSUVERND sraátt að ryðja sér til rúms, og' eitthvað mun sykur- og ]<affineyzla hafa aukizt, þótt hún yrði aldrei mjög mikil hjá mér, en hvítur sykur kom í stað kandís- og púður- sykursins. Maturinn var ávallt einfaldur. Steikt kjöt liafði ég aðeins á hátiðum og notaði alla tíð lítið krydd. Og yf- irleitt iief ég jafnan verið lítið gefin fyrir kjöt og fisk. Mislingar og lungnabólga. Ég var lieilsuhraust í hernsku, en féklc mislinga, þegar ég var 11 ára, og kom liart niður. Fvrir nálægt 30 árum, er ég' var um hálf- fimmtugt, veiktist ég af illkynjaðri lungnabólgu. Eg lá lengi milli heims og lielju, og var mér vart hugað líf. En lífið gekk með sigur af hólmi. Um aðrar leg'ur var ekki að ræða, þangað til eksemið læsti klóm sínum í mig. Um meltinguna er það að segja, að liún var eins og gerist og gengur. Ég liafði að jafnaði Iiægðir einu sinni á dag, og maginn var alltaf heilbrigður. Útbrot á fótleggjum. Fáeinum árum eftir lungnabólgu- leguna féklc ég úthrot á fótleggina. Voru það eins konar vatnsbólur, sem vall og ýrði úr við og við. Ég bar á þær sinkpasta, og hafði það nokkra hót í för með sér, en þvi miður voru það aðeins stundargrið. Bólurnar komu aft- ur og aftur, þótt greri í bili. Kvilli þessi ágerðist, og var ég orðin allilla haldin, cr ég' leitaði til læknis míns, Magga heitins Júl. Magnúss. Var ég þá komin hátt á sextugsaldur. Ég' gekk til hans um 14 ára skeið, og gaf liann mér margar tegundir á- burðar og ýmis meðul önnur, sem komu að engu haldi. Þá gerði liann tilraun með að taka mér blóð og dæla vökva inn i æð i þess stað. Tók liann stundum talsvert mikið blóð í einu. Ég hafði mjög slæman litarliátt. And- litið var rautt og þrútið og sömuleiðis hendurnar. En við þessar aðgerðir breyttist litarhátturinn stundum til batnaðar í bili, en sótti alltaf í sama horfið aftur. Góður árangur af breyttu mataræði. Vorið 1941 fór læknir minn utan og var erlendis allt sumarið. Um það leyti var líðan mín hin versta. Svo mikil úrferð var úr

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.