Heilsuvernd - 01.05.1947, Blaðsíða 39

Heilsuvernd - 01.05.1947, Blaðsíða 39
HEILSUVERND 31 fossi og frá Gröf í Hrunamannahreppi, jörS NLFÍ, þar sem heilsuhælið á að rísa upp. Myndin var öll í litum og gullfalleg frá upphafi til enda, og vakti hún mikla og verðskuldaða hrifningu áhorfenda. Guðmundur Einarsson frá Miðdal sýndi myndina og skýrði hana í forföllum Vigfúsar. Þá lék Lansky-Otto, kennari við Tónlistaskólann, nokkur lög á píanó við mjög góðar undirtektir, og þar á eftir skemmti JBaldur Georgs með búktali sínu, sem vakti mikla kæti. Að lokum flutti forseti félagsins, Jónas læknir Kristjánsson, nokkur ávarpsorð. Kl. 11 liófst svo dans, sem stóð til k'. 1 eftir miðnætti. Meðan á dansinum stóð, var á boðstólum drykkur úr eplum, hunangi, sítrónusafa og vatni. Drykkurinn var búinn til jafnóð- um fyrir augum gestanna, í sérstakri hrærivél, sem hrærði hann á 1—2 mínútum, og þótti hann hinn ljúffengasti. Skemmtunin var á óheppilegum tíma, vegna þess að inflú- enzufaraldur geisaði í bænum. Samt sóttu hana um 180 manns. Ágóðinn af skcmmtuninni varð um þrjú þúsund krónur og rann allur í Heilsuhælissjóð. Are Waerland kemur til landsins 18. júní nlc. og dvelur hér til júlíloka. Hann mun flytja fyrirlestra víðs- vegar um landið á veg- um NFLÍ, og hefir lagt á sig það erfiði að læra íslenzku til þess að geta flutt fyrirlestra sína á því máli. Á aug- lýsingasíðu VIII er nán- ar lýst tilhögun ferða- lagsins.

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.