Heilsuvernd - 01.08.1948, Page 16
8
HEILSUVERND
einir, sem höfðu samið sig að lifnaðarháttum Waerlands
um nokkurt skeið, höfðu lesið bækur hans og rit og voru
því vel kunnugir kenningum hans. Námskeiðið sóttu 65
manns, karlar og konur, þar af tíu útlendingar: 4 Finnar,
4 Norðmenn og eg og kona mín, Halldóra Guðmundsdóttir.
Nú skal lýst í stuttu máli tilhögun námskeiðsins.
Kl. 6.30 var hringt til fótaferðar, og fengu menn sér þá
volgt te, sem búið var til úr ýmsum jurtum, eða soð af
grænmetisleifum frá kvöldinu áður. Teið var drukkið
mjólkur- og sykurlaust. — Kl. 7.15 var leikfimi, sem
stjórnað var af leikfimiskennara einum — undir beru lofti,
þegar veður leyfði — og að leikfiminni lokinni fengu menn
sér kalt steypibað.
Kl. 8 var morgunverður: Súrmjólk eins og hver vildi, og
út á hana eftir vild púðursykur, hveitihýði, hveitikím, hör-
fræ, heilt eða malað, og hrár laukur.
Frá kl. 9-11 flutti Waerland fyrirlestra sína, en í byrjun
hvers fyrirlesturs eða fundar var sungið lag, og á undan
fyrirlestrum Waerlands flutti kona hans, frú Ebba Waer-
land, kvæði eða stutta hugvekju eftir sjálfa sig eða aðra.
Fyrirlestrar Waerlands gengu aðallega út á byggingu
mannslíkamans og líffæra hans og hlutverk þeirra, rétta
hirðingu þeirra og næringu, orsakir helztu sjúkdóma og
leiðirnar til lækningar þeirra og útrýmingar.
Kl. 11 fengu menn sér volgt te, og síðan var „rytmisk“
leikfimi, sem norskur leikfimiskennari stjórnaði. — Kl.
12 var hádegisverður: Krúska eða molínógrautur með
epla- eða berjamauki og nýmjólk, brauð smjör, mysuostur
eða mjólkurostur og laukur. Síðan var hvíldartími til kl. 15.
Kl. 15 -17 voru fyrirlestrar um ýmisleg efni. Annan-
hvern dag flutti sálfræðingur nokkur, dr. Helle að nafni,
fyrirlestra um skapgerðarmyndun. Þá voru fluttir nokkrir
fyrirlestrar um hinar nýrri ræktunaraðferðir, sem getið
hefir verið hér í ritinu og verður nánar sagt frá í næsta
hefti. Einn daginn fórum við til búgarðs í nágrenninu, þar
sem byrjað var að nota þessar nýju aðferðir.