Heilsuvernd - 01.08.1948, Qupperneq 30
22
HEILSUVERND
Árangrinum lýsir Sir Albert þannig í „The Empire Cotton
Growing Review“, Vol. XIII:
„Á árunum 1910 til 1931 gerði eg athuganir á áhrifum
fóðursins á mótstöðuafl húsdýra gegn smitandi sjúkdóm-
um, svo sem nautapest („rinderpest"), gin- og klaufaveiki
„septicaemia" o. s. frv., sem oft höfðu í för með sér niður-
skurð í heilum héruðum. Engin þeirra húsdýra, sem tilraun-
ir mínar náðu yfir, voru einangruð eða bólusett. Þvert á
móti lét eg þau ganga frjáls innan um meira og minna
sjúka gripi úr nágrenninu, og þrátt fyrir það sýktust þau
aldrei. Skepnurnar mínar reyndust gersamlega ónæmar
fyrir öllum þeim sjúkdómum, sem herjuðu miskunnarlaust
á búfénað nágrannanna.
Þetta sýnir, að af réttri meðferð jarðvegsins leiðir heil-
brigðan gróður, og af honum verða dýrin svo fullkomlega
hraust og heilbrigð, að segja má, að þau verði með öllu ó-
móttcekileg fyrir hverskonar smitandi sjúkdóma.“
Þetta á ekki aðeins við þá sjúkdóma, sem orsakast af
bakteríum, heldur einnig hina skæðu virussjúkdóma.
Sir Albert hefir ekki haft tök á því að láta tilraunir sínar
ná til manna. En rökrétt hugsun segir okkur, að ræktunar-
aðferðir, sem megni að varðveita húsdýrin okkar frá hin-
um skæðustu drepsóttum og hverskonar sjúkdómum, hljóti
að verka í svipaða átt, ef þeim er beitt við ræktun á græn-
meti og öðrum jurtum til manneldis. Og sterka staðfestingu
á þeirri skoðun finnum við einmitt í rannsóknum McCarri-
sons á heilsufari Húnsabúa í Norður-Indlandi (sjá HEILSU-
VERND, 3. hefti 1946). Þeir nota svipaðar ræktunaraðferð-
ir og Sir Albert reyndust beztar, og þar þekkjast varla eða
ekki hinir venjulegu sjúkdómar menningarþjóðanna, hvorki
næmir né óríæmir.
Hið mikla vandamál um orsakir og útrýmingu sjúkdóm-
anna liggur nú ljóst fyrir: Sjúkdómar í jurtum, dýrum og
mönnum eiga eina allsherjar orsök: ófullkomna næringu
vegna rangra ræktunar- og fóðrunaraðferða og annarra
óheppilegra lífsskilyrða. Og eina leiðin til útrýmingar sjúk-