Heilsuvernd - 01.08.1948, Qupperneq 31
HEILSUVERND
23
dómunum er að bæta úr þessum ágöllum. En þá verður að
byrja á byrjuninni, en það er jarðvegurinn, moldin. LJr
heilbrigðum jarðvegi vaxa heilbrigðar jurtir, sem eru full-
gild og fullkomin fæða bæði dýrum og mönnum. Og dýraaf-
urðir, svo sem mjólkin, eru því aðeins fullkomnar til mann-
eldis, að dýrin séu sjálf fullkomlega heilbrigð, fóðruð á
jurtum úr heilbrigðum jarðvegi. En jarðvegurinn heimtar
sitt: Til hans á að renna allur úrgangur frá jurtum og dýr-
um, úrgangur, sem nú er víðast brenndur, grafinn eða
leiddur til sjávar. Hina eðlilegu hringrás lífsins (sbr. grein
í síðasta hefti) má ekki rjúfa, ef ekki á verra af að hljótast.
Af vanþekkingu hafa mennirnir rofið hlekk í þessari keðju,
og afleiðingarnar, refsinguna, þekkjum við alltof vel: sjúk-
dómabölið.
Við verðum að hnýta saman keðjuna á ný. Það er eng-
um erfiðleikum bundið. Það kostar engin aukaútgjöld.
Það hefir enga tímaeyðslu í för með sér. En það kostar
lífsvenjubreytingar, sem verða að koma smátt og smátt.
Það má enginn hugsa sem svo: Það er of seint fyrir mig að
fara að taka upp nýjar ræktunaraðferðir og nýjar venjur
í mataræði og öðrum lifnaðarháttum, þetta tekur svo lang-
an tíma. Ef allir hugsuðu á þessa leið, þá yrði lítið úr flest-
um framkvæmdum og framförum. Þá yrði t. d. aldrei gróð-
ursett tré. Við verðum að hugsa fram í tímann, og ekki
aðeins um okkur sjálfa, heldur um börn okkar og barna-
börn og allar komandi kynslóðir. Ef við lítum þannig á mál-
in, þá sjáum við, að það er aldrei of seint að byrja. Og því
fyrr, því betra.
JÓNAS KRISTJÁNSSON
fór norður I land um miðjan september og flutti fyrirlestra i deild-
unum á Akureyri (13/9) og í Ólafsfirði (14/9) og á Sauðárkróki
(17/9). — Jónas varð 78 ára hinn 20. sept.
Björn L. Jónsson flutti erindi í deildinni á ísafirði 6. og 7. október.
Síðari fundurinn var útbreiðslufundur.