Heilsuvernd - 01.08.1948, Blaðsíða 40
32
HEILSUVERND
fundi NLFÍ og þarf til breytinganna samþykki 2/3 hluta mættra
félagsmanna.
13. gr. Fyrsta sjóðsstjórn skal leita staðfestingar ríkisstjóra á
skipulagsskrá þessari.
Skipulagsskráin var samþykkt á aðalfundi NLFl 19. marz 1944 og
birtist i B-deild Stjórnartíðinda 1944, bls. 111. Hér birtist hún með
þeim breytingum, sem gerðar voru á henni á aðalfundi félagsins 29.
apríl 1948 og nánar er sagt frá i síðasta hefti.
FRÆÐSLUKVIKMYNDIR.
Félagið hefir nú eignazt nokkrar fræðslukvikmyndir um manns-
likamann og störf hans. Verða þær sýndar í vetur á fundum félags-
ins í Reykjavík og síðan sendar til deildanna úti um land.
Fyrir nokkru var tekin i Svíþjóð kvikmynd, sem sýnir daglega
lifnaðarhætti Waerlands og fleira, er snertir verndun heilsunnar. Að
sjálfsögðu leikur Waerland sjálfur aðaihlutverkið í myndinni. Hún
hefir nú verið sýnd viða um Svíþjóð við mikla aðsókn og hrifningu.
Björn L. Jónsson fékk því til leiðar komið í utanför sinni í sumar,
að myndin verður lánuð NLFÍ á næsta ári, þótt eftirspurn sé mikil
eftir henni í Svíþjóð enn.
KARTÖFLULUMMUR.
5 bollum af hráum, rifnum kartöflum er blandað saman við 1 bolla
af heilhveitimjöli, lítið eitt af sykri og smátt saxaðan lauk og hrært
saman við mjólk. Úr deiginu eru steiktar þunnar lummur, sem borða
skal heitar með aldinmauki.
KARTÖFLUVATN.
Nokkrar kartöflur eru burstaðar eða þvegnar vandlega, sneiddar
niður með hýðinu í % cm. þykkar sneiðar og köldu vatni hellt á.
Hitað og soðið við hægan eld í 20 til 30 mínútur. Ekkert sált. Vatnið
er drukkið með kartöflunum eða án þeirra. Eitthvert bezta meðal við
allskonar gigt.
HRÁTT GRÆNKÁL.
Grænkálið er þvegið vandlega og hakkað fínt ásamt gulrótum og
lauk. Súrmjólk eða súrum rjóma eða rjóma blönduðum dálitlu af
sítrónusafa blandað saman við, og ennfremur dálitlu af rúsínum til
smekkbætis, ef vill.