Heilsuvernd - 01.12.1955, Qupperneq 17

Heilsuvernd - 01.12.1955, Qupperneq 17
HEILSUVERND 101 Mér hefur reynslan kennt, að rétt manneldi ræður mestu um heilsufar manna, og hvort þeir sleppa vel eða miður, þegar bráðir sjúkdómar eru á ferðinni. Á hinn bóginn hefur hún einnig kennt mér, að lyf séu viðsjárverð, og lökust ýms bakteríueyðandi lyf, ekki sízt cortison og auromysin t. d., vegna þess að þau lama lífsþróttinn, veikja mótstöðuafl líkamans. Má bezt sjá þetta af því, að sjúklingar, sem fá þessi lyf, eru lengi að ná sér á eftir, og börn munu í sum- um tilfellum aldrei ná sér til fuHnustu eftir slíka meðferð. Ég legg sem sagt megináherzlu á að auka lífsaflið með réttri, lifandi fæðu, en um fram allt með sem beztri og öruggastri hreinsun líkamans. Blóðið verður um fram allt að hreinsa. Það er sannfæring mín, að meginhluti allra þeirra sjúk- dóma, sem sækja á vestrænar þjóðir, stafi af orsökum, sem unnt er að koma í veg fyrir. Það er engin tilviljun að alls konar næmi og ofnæmi sækir á menn. Þetta stafar fyrst og fremst af röngu fæðuvali, ónáttúrlegri fæðu, sem gerð hefur verið að verksmiðjuiðnaði. En hættulegast er ofátið og lyfjaátið. Allir þeir kvillar, sem á oss herja, eru bein og óbein afleiðing ónáttúrlegrar og dauðrar fæðu. Eina leiðin út úr öngþveiti sjúkdómanna er rétt valin fæða, nátt- úrleg og lifandi. Og ég býst ekki við, að mænusóttin sækti heldur á menn, ef þessum reglum væri fylgt. Lungnakrabbi og reykingar. Lungnakrabbinn heimtar nú 24000 fórnarlömb á ári hverju í Bandaríkjum Norður-Ameríku einum saman og tekur þannig sæii á bekk með farsóttum sem dánarorsök, að því er próf. Elmer Hess, hinn nýi forseti ameríska læknafélagsins skýrir frá (Time, 13. júní). „Tölurnar einar tala ljósu máli. Af 100.000 mönnum, sem ekki reyktu, dóu aðeins 33 úr lungnakrabba á 32 mánuðum. af reykingamönnum hins vegar 246, eða sjö sinnum fleiri, og í réttu hiutfalli við það, hve vindlinganeyzla beirra var mikil. Sörnn niðurstöðui' fcngust varðandi krabba í barkakýli.“ (Wendepunkt),

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.