Heilsuvernd - 01.12.1955, Blaðsíða 42
126
HEILSUVERND
lítra af vatni upp í suðumark setja í vatnið 10 grömni af venju-
legu múrarakalki eða muldum kalksteini, hella síðan í þetta einu
kílói af hreinum og völdum maísgrjónum og halda vatninu i suðu
á meðan, en loka síðan pottinum, ta'ka hann af eldinum og láta
standa í hálfan til heilan dag (nokkrar klst. geta dugað ef á
liggur), kalkið losar og leysir því næst upp ysta trénishýði maís-
kornanna og mýkir þau að innan. Hinn dýrmæti frjósproti helzt
óskaddaður bg fastur við kornið. Þvi næst eru hin afhýddu korn
tekin upp úr vatninu, þurrkuð örlítið með klút eða lofti sem um
þau leikur og síðan möluð eins fint og unnt er í kaffikvörninni
eða öðru tæki. Vegna þess hve grjónin eru vatnsþrungin, verður
að láta þau hægt og lítið í einu í kaffikvörnina svo að hún stífl-
íst ekki. Með þessu fæst fyrsta flokks tamölumjöl. En einfaldari
aðferð getur lika gengið: Kornin má mata þurr og með hýðinu.
Mjölið verður þá aðeins kórnóttara og ekki alveg eins bragðgott.
Kryddaðar tamölur.
500 g. af maískornum, sem möluð hafa verið eins og að ofan
segir, 14 1. af grænmetissoði í rakt mjöl, en Vi 1. í þurrmalað, 5
g. af salti, 150 g. af smjöri (eða hnotusmjöri), þeyttu í froðu,
mjöli og öðru bætt í smám saman og allt hrært vel. Deigið er sett
í tamölumót, kúfuð matskeið í hvert, og nægir i 24 tamölur. í stað
maísblaða má nota léreftspoka i tamölumótin (krainarhús). Ilag:
400 g. tómatar, %' laukur af meðalstærð og einn geiri úr hvít-
lauk, allt fínsaxað, vel hrært saman og sniurt yfir tamöludeigið.
Mótunum síðan lokað og þau sett á endann niður í gufupott og
fullsoðið i klukkustund. Fullsoðnar eru þær, þegar deigið losnar
frá mótinu.
Sætar tamölur.
500 g. maískorn, möluð eins og áður segir, 14 1. mjólk (í þurr-
malað mjöl % 1.), 100 g. púðursykur eða hunang, 100 g. rúsínur,
150 g. smjör eða plöntufeiti, krydduð með röspuðu sítrónuhýði.
Meðferð að öðru leyti eins og áður greinir.
„Masa“ (maísdeig).
Þennan kornrétt er auðvelt að matreiða til tilbreytingar frá
daglegu fæði. Einu kílói af venjulegum maís er hellt i einn lítra
af sjóðandi vatni, sem 10 g. af kalkdufti hafa verið leyst upp í,
og látið standa í nokkrar klst., eða yfir nótt. Kornin eru siðan
tekin úr vatninu og möluð rök eins fint og unnt er, og ef nauð-
syn krefur með íbleyti af sjóðandi vatni. „Mösuna“, eða hið mal-
aða korn, má síðan nota i þunna eða þykka grauta, alla vega sam-
an setta, og þó fyrst og fremst í