Heilsuvernd - 01.12.1955, Síða 26
HEILSUVERND
Dr. ARNOLD LORAND:
Reykingar kvenna
Enda þótt grein þessi sé rituð fyrir nokkrum árum og
margt hafi siðan komið í ijós, sem óréttar enn frekar
orð hennar um skaðvæn áhrif tóbaksins á líkama manns-
ins, eru þau þó í tíma töluð ei að síður.
Sumarið 1925 leitaði kona nokkur frá Ameríku hér
lækninga hjá mér. Hún var 32 ára og hafði haft innvortis
þrautir nokkur ár. Lýsti hún þrautum sínum á þann hátt, að
þær væru því líkastar sem mús væri að naga gat á mag-
ann á sér. Hún sagðist reykja sem næst því 30 vindlinga
á dag. Mér kom fyrst til hugar magasár og mytidi það
valda þrautum hennar. En það var hvort tveggja að blóð
hafði aldrei fundist í saur hennar og að Röntgengeislar
sýndu ekkert sár. Komu mér þá til hugar gallsteinar með
bólgu í gallblöðrunni. En rannsókn gerði það ekki senni-
legt að svo væri. Því við djúpa innöndun voru engin eymsli
á þessum stað. Mér varð því að beina athygli minni að
andliti konunnar og leiddi það til þess að spyrja hana um
hve marga vindlinga hún reykti á dag. Svarið var eins
og ég bjóst við: Svona milli 20—30. Andlit hennar minnti
mig á það, sem ég hafði oft áður veitt eftirtekt á konum,
sem reykja mikið. Það var skollitað á hörund með gráhvít-
um blæ. Hin dökku augu þessarar konu voru dauf, en að
öðru leyti var hún fremur lagleg. Kinnarnar voru innfalln-
ar. Vöðvarnir í andliti hennar og yfir höfuð í öllum lík-
ama hennar voru slyttulegir. Sjúklingurinn leit út fyrir
að vera 10 árum eldri en árin sögðu til. Mörg hundruð
kvenna hafa leitað lækninga til mín og allar litu þær út
fyrir að vera miklu eldri, en þær voru í raun og veru, ef
þær reyktu meira en örfáa vindlinga á dag.
Allar báru þær þess vott að hörundslitur þeirra hafði