Heilsuvernd - 01.12.1955, Qupperneq 27

Heilsuvernd - 01.12.1955, Qupperneq 27
HEILSUVERND 111 misst sinn fegursta blæ. Þar að auki höfðu kinnarnar misst festu sína og voru orðnar hangandi, og af þessum orsök- um hafði andlitið misst hin eðlilegu svipbrigði sín. Ungt kvenfólk ættu öllum fremur að gera sér það ljóst, hvílík- an feikna skatt óhóflegar reykingar leggja á þær, bæði likamlega og andlega. Blóðeitrun sú er tóbaksnautn veld- ur er skaðleg fyrir þá kirtla sem hafa það starf á hendi að halda ellinni í skefjum, sem sé: skjaldkirtilinn, kyn- kirtlana og nýrnahetturnar. Til þess að oss sé unnt að halda líffærum vorum sem lengst í æsku-ástandi, er það nauðsynlegt, að venja sig ekki á neina þá siði, sem trufla starfsemi innkirtlanna. En ég hlýt að staðhæfa það, að meðal allra þeirra hátta, sem hafa slíka truflun í för með sér, eru tóbaksreykingar lang verstar, þegar þær eru um hönd hafðar í óhófi. Þetta á sérstaklega við um kvenfólk. Meðal kvenna fer sá siður vaxandi nú á dögum, að herma eftir háttu karlmanna. Konur hirða ekki um þá staðreynd, að þær eru ekki byggðar eins og karlmenn. Af því leiðir það að líffæri þeirra megna ekki að vernda þær gegn skaðlegum áhrifum tóbaks. Vér veitum eftirtekt þeim breytingum sem verða á húðinni. Hún missir sinn eðlilega lit. Fegurri litblær hennar glatast. Vöðvarnir missa festu sína og samdráttar-hæfileika. Hárnæringin helst ekki lengur í eðlilegum skorðum, og hætta eykst á byrjun til tannskemmda. Þá er enn fremur einn regin munur á inn- kirtlum karla og kvenna. Skjaldkirtillinn starfar og veitir viðnám á allt annan hátt, hjá körlum en konum. Allar breytingar i kynkirtlum kvenna hafa áhrif á skjaldkirtil- inn. Þannig stækkar hann áberandi í hvert skipti, sem konur hafa tíðir. Enn fremur stækkar hann meðan konur ganga með fóstur, meðan á barnsburði stendur og meðan konur hafa börn á brjósti, og að lokum ekki síst, þegar konur nálgast 50 ára aldur, þá ber oft á því sjúkdóms- einkenni sem kallað er Graveskvilli og lýsir sér í því, að konur verða bereygðar, augun ganga út svo þær geta ekki lokað þeim til fulls.

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.