Heilsuvernd - 01.12.1955, Side 29

Heilsuvernd - 01.12.1955, Side 29
HEILSUVERND 113 tóbaksreykingar hljóta að vera því skaðlegri. Ég hef oft veitt eftirtekt aukinni viðkvæmni á gallblöðrustaðnum á konum, sem reyktu mikið. Þessi viðkvæmni stafaði af þrota, en ætíð var erfitt að draga úr honum á konum sem reyktu mikið af vindlingum. Þessi þroti er ætíð samfara langvinnum tregum hægðum, eða kyrrstöðu í þörmum. En orsökin mun vera truflun á starfsemi innkirtla, sérstak- lega skjaldkirtilsins og kynkirtlana. Á þennan hátt má finna skýringu á því að konum er miklu hættara við gall- steinaveiki en körlum. 1 þeim ættum, þar sem mikið ber á gallsteini ættu konur að forðast reykingar. Konur sem reykja mikið, þær hafa einnig miklu minni mótstöðu gegn ýmis konar næmum sjúkdómum. Bendir það áþreifan- lega á hin skaðlegu áhrif reykinga. Til Karlsbad koma konur víðsvegar að til að leita sér lækninga. Gæti ég eftir að hafa stundað lækningar þar í 25 ár fullyrt að nú reykja þar miklu fleiri konur upp á síðkastið, heldur en átti sér stað fyrir stríðið. Enn frem- ur er það víst að heilsa þeirra og fegurð hefur látið á sjá, af þessum orsökum. Ein afleiðingin er elli fyrir aldur fram. Fyrst að það hefur nú reynst svo, að reykingar hafa skaðleg á’hrif á vaxnar konur, þá hljóta þær að hafa ennþá miklu skaðlegri áhrif á unglings stúlkur. Það vek- ur sérlega eftirtekt nú á dögum, hversu ungar stúlkur eru lystarlausar, og þess vegna horaðar og blóðlausar. 1 stuttu máli: ungt kvenfólk er sljóft fyrir því, hversu háan og mikinn skatt þær greiða á kostnað heilsu sinnar fyrir þá efasömu ánægju að reykja. Er mikil ástæða til þess að kosta kapps um að fá drengi til þess að láta vera að reykja, að minnsta kosti meðan þeir eru undir skólaaga, en þó er miklu meiri þörf á því, að fá ungar stúlkur til þess að forðast reykingar og það fyrir margra hluta sakir. Foreldrar ættu af fremsta megni að beita áhrifum sín- um á börnin til þess að sporna við því að þau taki upp ósiðinn að reykja, hvort heldur er um stúlkur eða pilta að ræða. Að minnsta kosti ætti engum að vera leyft

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.