Heilsuvernd - 01.12.1955, Qupperneq 33
HEILSUVERND
117
ef skilninginn vantar ekki á mikilvægi þess starfs né opin
augu fyrir því, hvert stefnir fyrir oss eins og nú er fram
haldið.
Hornsteinn hins nýja heilsuhælis vors í Hveragerði er
þessi uppbyggingarstefna. — Það er heilsuræktarhæli. Það
er enn sem komið er af vanefnum gert og þarf sem fyrst
að komast í það horf, sem því er ætlað. Og það mun takast
því fyrr, sem fleiri gera sér ljóst, hve líf og velferð þjóðar
vorrar er því háð, að vér hverfum af braut hrörnunarsjúk-
dómanna til heilbrigðrar lífsstefnu.
Alexis Carrel:
VARNAÐARORÐ.
Mannslíkaminn hefur næstum að segja undraverðan hæfileika
til þess að hjóða erfiðustu aðstæðum byrginn. En þegar meira
reynir á aðlögunarhæfileika hans en góðu hófi gegnir, koma alls
konar truflanir i 1 jós: siðferðileg spilling, taugaveiklun, sálsýki,
glæpahneigðir, ófrjósemi og hvers kyns sjúkdómar.
Náttúran eyðir þeim, sem vanrækja sjálfa sig. Sjálfsmorðið
kemur oft fram í fínni og þægilegri mynd, til dæmis sem ofát,
lífsþægindi, efnahagslegt öryggi og ábyrgðarleysi. Enginn skildi
hættuna af þeim lifsþægindum, sem vér höfum notið svo óhóflega.
enginn sá þær villigötur í manneldismálum, sem ungir og aldn-
ir hafa ratað inn á.
Hvernig á einstaklingurinn að forðast hin skaðvænu áhrif nú-
tíma umhverfis? Með því að setja sér svipaðar reglur og vitr-
ingar fyrri alda, bindast félagsskap við þá, sem eru sama sinnis,
og aga sjálfan sig, neita sér til dæmis um að hlusta á lygarnar
i útvarpinu, lesa aðeins mikilsverðar tilkynningar i dagblöðun-
um, hafa að engu greinar og bækur annara höfunda en þeirra,
sem hreinskilnir eru, siðvandir og greinargóðir, kynna sér áróð-
urstækni nútímans, til þess að geta séð við henni, neyta í stuttu
máli frelsis síns til ályktana og atliafna.
Fjölskyldan verður aftur að festa rætur í mold eins og for-
feður vorir. Hver rnaður að eignast sitt hús, þótt lítið sé, og verða
sér úti um garðliolu. (íhuganir um lífshætti).