Heilsuvernd - 01.06.1956, Blaðsíða 19
HEILSUVERND
Daglega fer mér
frarn í öllu
(Um sefjunarlækningar Emile Coué, þýtt og endursagt úr bók
C. Harry Brooks).
Englendingurinn Harry Brooks hefur ritað bók þá um
sefjunarlækningar frakkneska læknisins Emile Coué, sem
er heimild þessarar greinar (The Practise of Autosugges-
tion). Hann er staddur í Nancy snemma sumars 1921 og
lýsir í fyrsta kafia bókarinnar heimsóknartíma hjá Coué,
þar sem fjöldi sjúklinga skýrir frá fengnum bata, þar á
meðal kona með sára hellu í brjósti, sem greind hafði verið
sem krabbamein af lækni hennar (ranglega að áliti Coué)
en hvarf á þremur vikum; önnur kona hafði læknazt af
blóðleysi; maður nokkur af sári vegna stíflaðra æða; og
sjúklingur, sem hafði stamað allt sitt líf, hafði læknazt af
því á svipstundu. Coué skýrði síðan fyrir sjúklingunum
þau lögmál sem sef junarlækningar lúta, og þá einkum þetta,
að: (1) sérhver ímynd, sem áltekur huga manns, breytist
raunverulega i andlegt eða líkamlegt ástand, og að vilja-
átak, sem beitt er til að sigrast á slíkri imyndun, verður
aðeins til þess að styrkja hana. Þessu færði hann sönnur
að með eftirfarandi tilraun: Hann lét unga stúlku teygja
fram hendurnar, spenna greipar og kreista saman fastar
og fastar, unz þær tóku að titra. „Horfðu á hendurnar á