Heilsuvernd - 01.06.1956, Blaðsíða 30
58
HEILSUVERND
renni til á brettinu og gera manni fært að setjast upp í æfingun-
um. Höfðalagsendann er gott að brydda að neðan með gúmmí-
ræniu til þess að stöðva hann á gólfinu.
Yfirleitt ættu menn að hafa fótaenda brettisins í stólsetuhæð
við allar æfingar, en lækka hann í fyrstu, ef menn skyldu finna
til svima. Ef til vill þola menn aðeins að æfa í fimm mínútur á
dag, og lengja þá tímann smám saman. En meðalsjúklingur ætti
að liggja á brettinu í hálftíma um þrjúleytið á daginn og áður
en hann fer að sofa að kvöldi. Ef innyfli hans eru sigin ætti
hann að hafa þrem til fjórum þumlungum hærra undir fótum
en höfði til þess að 'halda þeim i réttri legu alla nóttina.
Hér fara á eftir skýringartextar og myndir af leikfimisæfing-
um á skábrettinu — ljósmyndirnar sýna þá gerð af því, sem
C. M. Pierce hefur útbreitt um Bandariki N.-Ameríku. — Loks
skal það ítrekað, að menn eiga að fara gætilega í æfingar í fyrstu
og njóta einkum hvíldar á brettinu, en taka síðan upp æfingarnar
smám saman.
I fótlykkjunum.
1. Legið í frumstöðu og hvílst.
2. Armteygjur, beinum örmum upp og aftur með höfðinu.
3. Róleg öndun með djúpum kviðvöðvahreyfingum.
4. Hliðbeygjur í liggjandi stillingu; lófar eru lagðir upp á kviðar-
holið og þrýst þar dálítið á til að auka verkun hreyfinganna
og létta herðahreyfinguna.
5. Risið upp i sitjandi stillingu og fingrum tillt á tærnar. Varizt
ofreynslu.
Fótlykkjum sleppt.
6. Knébeygjur upp'að brjósti. I þessari stöðu er höfðinu snúið
til hliðar nokkrum sinnum, síðan er þvi lyft og snúið i örfáa
liringi.
7. Hringsveiflur með fótum í lóðréttri stillingu. Fætur teygðir upp
og þeim síðan veifað í hringi, venjulega hvorum á móti öðrum.
8. Fótteygjur upp. Lyfta skal fótunum upp í lóðrétta stillingu
og láta þá síðan síga niður aftur. Þeim mun hægara sem fót-
um er lyft og þeir látnir siga, því erfiðari er æfingin. Þvi skal
byrja með að gera það fremur hratt, en síðan hægar og hægar.
9. Frumstaða og hvíld.
Av. Hvílizt vel á milli hreyfinga og æfinga allt eftir þörfum,
og andið alltaf sem jafnast og rólegast. Takið djúpar öndunar-
æfingar á milli öðru hvoru, 2—3 í hvert sinn. — Haldið aldrei
niðri í yður andanum, það er til ills.