Heilsuvernd - 01.06.1956, Side 29
HEILSUVERND
57
Skábrettið
Athyglisverð nýjung í sjúkraleikfimi.
Heilsuvernd hefur borizt örlitill útdráttur, eða fjórar blaðsíður
úr bók eftir lœkni í Bandaríkjunum, Bernard Jensen að nafni. Segir
þar frá æfingatæki, sem hann 'hefur notað við lækningar sínar.
Telur hann því margt til gildis og skýrir nokkuð verkanir þess
og' helztu æfinganna í því sjúkraleikfimikerfi, sem við það er tengt.
En það mun hafa náð allmikilli útbreiðslu í Bandaríkjunum og
hafa gefizt vel við lækningar á sumum sjúkdómum. Heilsuvernd
telur rétt að birta leiðbeiningar um það, hvernig borðið er smíðað,
fyrir þá sem fýsa kynni að reyna það, og lýsingar á helztu æf-
ingunum.
Það er tekið fram, að öruggast sé fyrir sjúklinga að hafa sam-
ráð við lækni um æfingarnar, og gæta þess að ætla sér af í fyrstu;
þeir sem hafa slappa kviðvöðva verða þannig að fara mjög gæti-
lega í fyrstu og borðið á ekki að nota, ef menn hafa háan blóð-
þrýsting, blæðingar, berkla, krabba í kviðarholi, botnlangabólgu
og magasár, nema læknir hafi tilsjón með; og sama gildir fyrir
þungaðar konur.
Æfingarnar eru taldar góðar, ef um bólgur eða þrota er að ræða
í höfði, t. d. í ennis- og kjálkaholum eða eyrnagönguin; einnig
fyrir augun, gegn exemi á höfði og hárlosi. Þær hafa reynzt vel
við hjartasjúkdómum, þreytu, svima, slæmu minni og lömun.
Árangurinn byggist á því, hve mjög þessar æfingar greiða fyrir
blóðrás til höfuðsins og til hjartans frá útlimunum, og þær örva
heilastarfið alveg sérstaklega og hjálpa til að færa sigin innyfli
í eðlilegt horf. Heilavefir þeirra, sem sitja að staðaldri eða standa
kyrrir við vinnu sína, fá oft ónóga næringu, vegna þess að blóð-
rásin er treg; líffærunum verður of erfitt til lengdar að knýja
blóðið upp á móti; en ef vefjum heilans berst ekki nóg af næring-
arríku blóði, þá kemur það einnig' niður á öðrum Hffærum.
Og hér er þá lýsing á skábrettinu:
Það er 47—50 cm. breitt og 180—185 cm. langt, úr fimmföldum
krossviði, sem er 2 cm. á þykkt. Hliðargrip eru gerð með þvi
að spora raufar í borðið 3 cm. frá röndunum hvoru megin, en
60 cm. frá höfðalagi. Raufin er 3 cm. á breidd og 45 cm. á lengd.
Öklahöld eru fest í brettið til fóta, en þau varna þvi að líkaminn