Heilsuvernd - 01.05.1960, Blaðsíða 8
6
HklLSUVERND
lands, er í rauninni ekki annað en fortölur Krishna, og
að lokum tekst lionum að sannfæra Arjuna um, að eigi
hlýði annað en herjast, og kemst hann að síðustu svo að
orði: „Villan er vikin frá mér. Þú, Krishna, hefur auð-
sýnt mér náð, svo að ég hef getað áttað mig. Ég er þegar
einráðinn i því, iivað gera skal. Efinn er horfinn. Ég
mun fara að orðum þínum.“
Skiptar eru skoðanir um hið mikla söguljóð, Bhaga-
vad Gita, eins og annað. Bókstafsbundnir trúmenn ind-
verskir halda því að sjálfsögðu fram, að það segi frá
sögulegum staðreyndum. Aðrir líta aftur á það sem lík-
ingamál, er segi frá baráttu þeirri, er hver sál sé í raun
og veru kvödd til þess að taka þátt í, á hinu mikla
orustusvæði örlaganna, Kúruvöllum liins daglega lífs.
Arjuna er fulltrúi persónuleikans, en Krishna er sálin
sjálf, eða guðseðli mannsins, sem hvetur hann til þess
að berjast og sigra. Óvinirnir eru fyrst og' fremst ógöf-
ugar tilhneigingar og girndir hins lægra eðlis, sem vissu-
lega er harla lítið skyggnt. Dhritarashtra hinn hlindi er
fulltrúi þess. En óvinir sálarinnar eru lika þessar sömu
ógöfugu hneigðir í öðrum mönnum, — yfirleitt hin
ótömdu náttúruöfl, á hvaða sviði sem þau láta til sín
taka. — Bhagavad Gita hefur löngum verið talið eins
konar guðspjall „Karna-Yogans“, sem svo er nefndur,
en Karna-Yogi er sá maður nefndur, sem er fyrst og
fremst athafnamaður og leitar þroska síns á sviði um-
bóta og alhliða mannræktar. Einn af slikum mönnum
var hann, sem vér erum nú saman komin til að kveðja
í dag, og þess vegna fannst mér ekkert betur við eiga
en lesa upp úr Bhagavad Gita við þetta tækifæri og hafa
nokkur formálsorð um andann í þessu fornfræga sögu-
Ijóði. Því að Jónas Kristjánsson var Karma-Yogi. Hann
var hetja starfsins, óbilandi liugsjónamaður, framsæk-
inn fullhugi, um leið og hann var mildur mannvinur.
Skarð er nú fyrir skildi, er hann er horfinn af hinu
sýnilega tilverusviði, því að jafnvel þó að hann væri