Heilsuvernd - 01.05.1960, Page 11
HEILSUVERND
9
um forvígismönnum stefnunnar, sem hann baröist fyr-
ir svo ötullega, fyrir samfylgd þeirra og samvinnu, fyrir
tryggð þeirra, hollustu og fórnarlund. Á ég þar ekki
sízt við stjórn Náttúrulækningafélags íslands, fram-
kvæmdastjóra félagsins og annað starfslið hér á hæl-
inu. Vil ég ekki láta hjá líða að nefna í þeim hópi hinn
verkljúfa og vinsæla lækni hælisins, Úlf Ragnarsson,
sem félagið var svo lánsamt að fá, Jónasi til aðstoðar
og ráðuneytis, og sem hin síðustu ár hefur af skiljan-
legum ástæðum verið aðallæknir hælisins. — Ég er þess
fullviss, að það mundi ekki vera Jónasi Kristjánssyni
að skapi, að hér væru raktar neinar harmatölur, þótt
liann hafi nú kastað slitnum líkamsklæðum. Hitt mun
heldur, að hann kysi, að burtför sín yrði til þess að
þjappa áhugaliði heilsuræktarstefnunnar saman og efla
það til nýrra átaka og afreka. — Hann var vel að verki
studdur af mörgum góðuin mönnum, þó að betur liefði
að visu mátt vera af hálfu þeirra, sem nefndir eru leið-
togar lýðsins, læknir og klerluir, en ekki tjáir um það
að sakast. Jónas Kristjánsson hefur lokið baráttu sinni
á Kúruvöllum — hardagasvæði — þessarar jarðar, og
sigurtákn hans er meðal annars þessi hælisbygging, þar
sem vér erum nú saman komin til þess að kveðja hina
föllnu hetju. Og — eins og segir i áðurnefndu kvæði,
„— öflugri sókn
skal áfram haldið.
Lýði skal vinna,
lönd og borgir. —
Víkja skulu kvillar
og vandi leysast,
fjarlægjast dauði
og flýja sorgir.
IJeilsuaðal
heima tveggja —-