Heilsuvernd - 01.05.1960, Blaðsíða 16

Heilsuvernd - 01.05.1960, Blaðsíða 16
14 HEILSUVERND verk, og las þær senr framhaldssögur á fundum. Fundar- sókn var mikil, enginn vildi missa af Skógarsögunum. Þá skipulagði Jónas fjallgöngur á vegum félagsins og stjórnaði þeim. I þessum fjallgöngum tóku þátt tugir barna og unglinga. Á einum af fyrstu fundum félagsins skýrði Jónas frá því, að hann ætlaði að ræða við skáta- höfðingja íslands, Axel Y. Tulinius, og athuga mögu- leika á að stofna skátafélag á Sauðárkróki. Hér fór sem fyrr, að Jónas lét ekki sitja við orðin tóm. Stuttu síðar þurfti Jónas til þings, en hann var þá alþingis- maður. Leið nú ekki langur tími, en þá kom skáta- foringi frá Reykjavík á vegum Jónasar og á hans kostn- að. Þetta leiddi til stofnunar skátafélagsins „Andvara" 22. marz 1929. Félagið er enn starfandi og er eitt af elztu skátafélögum landsins. Bandalag íslenzkra skáta sæmdi Jónas lækni heiðursmerki fyrir störf hans í þágu íslenzkrar æsku, áður en hann flutti frá Sauðárkróki. Bæði þessi æskulýðsfélög hafa haft mikil og góð áhrif á æsku Skagafjarðar og skapaði henni holl tómstunda- störf. Ég segi fyrir mig, að ég hefði ekki viljað fara á mis við þau áhrif, er ég hef orðið fyrir í þessum fé- lögum og þá sérstaklega í skátastarfinu. Jónas ræddi oft um nauðsyn þess að gera æskuna hrausta, þá yrði liún hamingjusöm. Nauðsynlegt væri að skapa hrausta sál í hraustum líkama. — Tóbak og áfengi veikja mótstöðuafl líkamans, þess vegna var Jónas á móti þessum nautnum. „Líkamsrækt er nauð- synleg og góð vörn gegn sjúkdómum“, sagði Jónas. Og hann lifði eftir þessari reglu, enda var hann stál- hraustur allt fram á síðustu ár. Hann stundaði fjall- göngur til 87 ára aldurs og voru það ekki lægstu fjöll- in, sem hann glímdi við. Ég minnist þess, að ég rakst á hann fyrir 3—4 árum er hann var í einu slíku ferðalagi. Hann hafði farið að heiman frá Hveragerði kl. 4 um nóttina og var á gangi upp um Henglafjöll. Hann hafði farið matarlaus, aðeins nærst á jurtum og tæru berg-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.