Heilsuvernd - 01.05.1960, Qupperneq 24
22
HEILSUVERND
Ilann andaðist á heimili sínu i Heilsuliæli Náttúru-
lækningafélags íslands i Hveragerði sunnudaginn 3.
apríl, nær því níræður að aldri, — fæddur 20. sept 1870.
— En útför hans verður gerð frá Dómkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 24. apríl kl. 2 síðd. Örstutt ágrip
af helztu æviatriðum hans er birt í 8. tbl. Morgun-
blaðsins, er kom út 5. apríl, og spara ég mér að endur-
taka þau. En með þvi að ég átti því láni að fagna að
kynnast þessum afbragðsmanni um nokkurt skeið ævi
okkar, langar mig til að minnast lians með nokkrum
orðum.
Jónas læknir var skipaður héraðslæknir i Sauðár-
krókshéraði frá 1. júní 1911 að telja og gegndi hann
því embætti til ársloka 1938. Kynning okkar hófst þegar
ég fluttist til Sauðárkróks 1. des. 1924. Fyrr en þá hafði
ég aldrei komið til Skagafjarðar, og var ég þá nær því
öllum ókunnugur þar. En móttökur læknishjónanna,
Jónasar og frú Hansínu Benediktsdóttur, konu hans,
voru með þeim hætti að okkur konu minni gleymdist
aldrei sú vinsamlega alúð, sem við áttum þá undir eins
að mæta á heimili þeirra. Og um það bil einu ári síðar
gerðist það, m. a. fyrir atbeina Jónasar læknis, að við
urðum nánustu nágrannar í kauptúninu og vorum það
öll þau ár, sem við áttum þar báðir heima. Og það hef ég
vitað æ síðan, að enginn maður hefur átt betri nágranna
en við hjónin og börn okkar áttum þá.
Þegar ég kom í Skagafjörð, varð ég þess brátt vís, hve
mikla hylli og álit Jónas Kristjánsson hafði öðlazt þar
sem læknir. Almenningur taldi honum fátt ókleyft sem
lækni. Hafði mikið orð farið af honum sem góðum lækni,
meðan liann gegndi emlnætti á Austurlandi. Og í Skaga-
firði urðu afrek lians sem skurðlæknis brátt kunn, bæði
þar heima í héraði lians og annars staðar um land. Minnist
ég þess nú, að ungur og efnilegur læknir, sem um stund-
arsakir þjónaði Hofsóshéraði, en var Jónasi til aðstoðar
við vandasama uppskurði, hafði það á orðið við mig, hve