Heilsuvernd - 01.05.1960, Page 25
HEILSUVERND
23
Síðast í okt. 1959. — Fjórir ættliðir: Guðbjörg með Gunnlaug
dótturson, Jónas, Ásta með Bjarna og Guðmund, dóttursyni. —
Fyrir aftan: Regína Birkis, dóttir Guðbjargar, Svanhildur Bjarna-
dóttir, dóttir Ástu.
ánægjulegt og uppbyggileg sér hefði þótt að sjá hann að
verki. Talaði hann um þetta af mikilli aðdáun. Varð ég
þess síðar einnig áskynja að ýmsir hinir færustu læknar
hér á landi á þessu tímabili höfðu miklar mætur á Jónasi
sem ágætum skurðlækni. Sjálfur komst ég brátt að því,
að hugur hans var allar stundir opinn og vökull við lækn-
isstörfin. — Satt er það, að honum, sem sjálfur var liarð-
ger og hugrakkur lireystimaður, var það stundum erfitt
að umbera hugleysi og kveifarskap i stórum stíl. En sjúkl-
ingar lians báru honum það vitni, að væri um alvarlegan
sjúkdóm að ræða, þá liafi hann jafnan verið þeim „ljúfur
og nærgætinn eins og bezta móðir“, — svo ég fari rétt
með orð þeirra.
Jónas fór oft utan, í þeirn erindum að kynna sér nýj-
ungar í læknavísindum. í einni utanför fór hann alla leið