Heilsuvernd - 01.05.1960, Síða 30

Heilsuvernd - 01.05.1960, Síða 30
28 HEILSUVERND ingu. Viðmátið stundum hrjúft hið ytra, en inni fyrir brann eldur heitra tilfinninga, sem allt vildu láta gott af sér leiða. Svo var hann og traustur vinur vina sinna að fágætt mun vera. Nú er þessi stórbrotni hugsjónamaður horfinn af sjón- arsviðinu eftir nær níutíu ára viðburðaríka ævi. En hann lifir hér áfram í verkum sínum. Heilsuhælið lians í Hvera- gerði mun reynast óbrotgjarn minnisvarði um víðsýni lians og stórhug. Svo munu og reynast öll hans verk i þágu mannræktar og mannkærleika. Kæri vinur, ég þakka þér samfylgdina, þótt hún yrði styttri en ég liefði óskað, hún var mér mikill ávinningur. Þín hollu ráð og föðurlega haklleiðsla mun mér seint gleymast. Blessuð sé þín minning. Árni Ásbjarnarson. Kveðja frá fyrrverandi sjúklingi. Þar sem ég er á meðal þeirra mörgu, sem eiga líf og fjör að launa Jónasi Kristjánssyni, finn ég mig knúinn til þess að mæla örfá þakkar- og lcveðjuorð. Ég segi því af sannfæringarkrafti og i fyllstu alvöru: Hér stend ég nú og má mæla, vegna liins mikla, hugsjóna- rika og giftusama starfs þessa framliðna vinar, sem nú er verið að kveðja i hinzta sinn. Mannvinurinn, hugsjónamaðurinn, mikilmennið Jónas Kristjánsson hefur lokið sínum jarðvistardögum, hér á meðal okkar. Hann hefur flutzt á annað og æðra tilveru- svið til þess að ná enn meiri og fullkomnari þroska. Það, að þroskast til mestrar fullkomnunar var hans háleitasta hugsjón, sem meðal annars hirtist skýrt og afdráttarlaust í öllu lians starfi á meðal vor.

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.