Heilsuvernd - 01.05.1960, Side 36

Heilsuvernd - 01.05.1960, Side 36
34 HEILSUVERND eigi gat orðið af því, að liann kæmist í skóla. Faðir lians dó 1889, og leystist húskapur upp þótt efni væru all- góð, sem nú líka gengu til skipta milli systkinanna. Jónas var þá orðinn 19 ára og hafði ekki getað sinnt námi, nema lítinn tíma á Eyjólfsstöðum í Vatnsdal við leiðsögu Sigurðar stúdents Jónassonar, frænda síns. Séra Benedikt á Grenjaðarstað var föðurbróðir Jón- asar og til hans fór hann til undirbúnings námi liaust- ið 1889. Haustið eftir, 1890, er Jónas var tvítugur, inn- ritaðist hann í Latínuskólann í Reykjavík og lauk stúdentsprófi 1896. Hafði liann á þessum árum heim- ili á Grenjaðarstað og vann þar á sumrum. Það var fyrirfram ákveðið að liann færi í Læknaskólann og þaðan útskrifaðist hann árið 1900 á þrítugasta aldurs- ári. Hafði hann á þessum árum það fyrir sumarvinnu, að fylgja útlendingum í ferðalögum i landinu, og var tvö sumur með Howell, hinum skozka, er drukknaði í Héraðsvötnum 1900. Sumarið 1899 lá leið þeirra yfir og eftir Langjökli, og ritaði Jónas ferðasöguna, sem enn hefur ekki birzt á prenti. Síðsumars 1900 sigldi Jónas til Kaupmannahafnar til venjulegs framhalds- náms og kom heim sumarið eftir. Þeir höfðu fylgzt að í námi frá fyrstu tið, Ingólfur Gíslason frá Þverá og Jónas, og nú tóku þeir til að athuga um laus embætti, sem í raun og veru biðu eftir þeim. Það var nýstofnað Reykdalslæknisliérað í Suður- Þingeyjarsýslu og Fljótsdalslæknishérað i Norður-Múla- sýslu, er þá var læknislaust. Þeir sömdu það með sér, að Ingólfur sækti um Reykdælahérað, þar sem hann var Þingeyingur, en Jónas um Fljótsdalshérað. Gekk þetta fram og voru veitingabréf þeirra undirrituð með fárra daga millibili í ágúst 1901. Litlu síðar lögðu ungu kandidatarnir á vit embætta sinna. „Það var 13. sept. sem við kvöddumst á Einars- stöðum, þar sem Ingólfur tók lieima, en ég hélt áfram í Grenjaðarstað — í frænda, vina og unnustu hendur,“

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.