Heilsuvernd - 01.05.1960, Qupperneq 37

Heilsuvernd - 01.05.1960, Qupperneq 37
HEILSUVERND 35 sagði Jónas. Þá voru 11 ár liðin frá því að hann lagði á skólaveginn á gömlum, góðum reiðhesti sér Bene- dikts. Á Grenjaðarstað stóð svo brúðkaup Jónasar h. 17. sept. s. á, og gekk hann að eiga Hansínu dóttur séra Benedikts. Var hún gáfuð stúlka og vel mennt, og reyndist Jónasi hinn traustasti lífsförunautur. Litlu síðar þetta sama haust settist svo Jónas að í embætti sínu, en livorki var þar til staðar bústaður né sjúkra- liús, og settist Jónas að á Arnheiðarstöðum, vel stæðu fyrirmyndarheimili, en húsbændur gáfufólk, sem Jónas batt ævilanga tryggð við. Árið eftir fékk liann horn úr Hrafnkelsstöðum til ábúðar, en árið 1903 losnaði Brekka í Fljótsdal úr ábúð, en sú jörð var lögð til læknisseturs á Austurlandi í upphafi þeirra mála 1772, en hafði eins oft verið bændasetur á þessum tíma. Á Brekku hóf Jónas myndarbúskap og þá þegar liafði hann sýnt slíka snilld i læknisdómum við erfiðar aðstæður, að læknisdæmið réðst í að reisa honum sjúkrahús með

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.