Heilsuvernd - 01.05.1960, Qupperneq 40

Heilsuvernd - 01.05.1960, Qupperneq 40
38 HEILSUVERND heldur greiddi sig inn á milli þeirra, þar til lifrin lá opin fyrir. Síðan greip liann glóandi járntein, sem hann hafði látið hita og bar að sárinu. Ekki hafði Stefáni sézt hregða neitt við sársaukann fram að þessu, en þegar hann sá hvar læknir mundaði glóandi járnið, varð honum að orði: „Ja, nú held ég þú ætlir að meiða mig.“ „Nei, þér verður nú ekki mikið um þetta, lifrin er tilfinningalaus,“ sagði Jónas. Jafnskjótt rak hann teininn inn um sárið, opnaði sullinn og færði út úr hon- um; lokaði síðan sárinu og saumaði saman skinn- sprettuna. Varð Stefán lieill af meini sínu og lifði síð- an mörg ár“ Mörg dæmi slík gerðust í Fljótsdalshéraði. Var það líka svo, að ævilangar tryggðir batt Jónas við marga menn á Fljótsdalshéraði. Sauðárkrókslæknishérað varð Jónasi stórum auð- veldara en Fljótsdalshérað. Þar kom hann að allgóðu sjúkrahúsi, og annar læknir sat á Hofsósi, svo auð- velt var að leita aðstoðar við meiriháttar læknisað- gerðir. Varð þar strax svo mikil aðsókn að sjúkrahúsi hans og öðrum læknisdómum, að varla mátti hann upp líta tímum saman, einkum fyrstu árin, meðan sjúkrahús voru fá í landinu. Fór, enn sem fyrr, hið mesta orð af læknisdómum hans, viti og ráðsnilld við óvanalega atburði, einkum í slysum. f Skaga- firði gat hann þó tekið þátt í almennum málum, var í hreppsnefnd og i stjórn kaupfélagsins um árabil, átti mestan þátt í því, að vatnsveita var lögð til Sauðár- króks, og öllum góðum málum var hann góður liðs- maður. Honum var það manna mest að þakka að spanska veikin var stöðvuð með samgöngubanni yfir IJoltavörðuheiði, og bjargaði hann þar hundruðum mannslífa á Norðurlandi og á Austurlandi, enda gerði Gísli' Sveinsson sýslumaður í Vik hið sama við Fúla- læk. Jónas gekkst fyrir stofnun félags í Skagafirði, er

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.