Heilsuvernd - 01.05.1960, Side 50
48
HEILSUVERND
og mildum mannvini sem Jónas var. Ég þakka hon-
um þá rótgrónu vináttu og tryggð, sem hann sýndi
mér og fjölskyldu minni, ásamt öruggri læknishjálp
þegar um það var að ræða. Saga vorrar þjóðar mun
minnast Jónasar Kristjánssonar læknis, sem einna sinna
mestu og beztu sona.
Fjölskyldu lians votta ég samúð og hið henni allr-
ar blessunar.
Pétur Gunnarsson.
„Mjög erumk tregt
tungu að hræra“.
Þessi orð koma mér í hug, er ég vil kveðja minn
góða vin, Jónas Kristjánsson lækni.
Ég tel það mikið lán, að leiðir okkar skyldu liggja
saman, og stend ég fyrir það i ómetanlegri þakkar-
skuld við forsjónina.
Ég kynntist Jónasi lækni og fjölskyldu hans fyrst,
nokkrum árum áður en hann fluttist alkominn til
Reykjavikur.
í Náttúrulækningafélagi íslands hefi ég starfað með
honum, síðan það var stofnað, og þar kynntist ég
bezt hans mikla mannkærleika og áhuga fyrir heil-
Ijrigði og velferð almennings.
Veglegan minnisvarða hefur hann reist sér með
hæli Náttúrulækningafélags íslands, sem hann helgaði
sína óvenjulegu starfskrafta, allt frá stofnun þess,
og gaf þar til aleigu sína. Hefur það nú þegar orðið
mörgum heilsulind og á vonandi eftir að verða til
mikillar blessunar, ef við, sem eftir stöndum nú og
starfað liöfum með honum, herum gæfu til að lialda