Heilsuvernd - 01.05.1960, Side 52
50
HEILSUVERND
í liófi, sem Jónasi Kristjánssyni var haldið á 75 ára
afmæli hans, komst einn ræðumanna, gamall og góður
Húnvetningur, svo að orði, að Húnvetningar hefðu um
langa hrið staðið í skugga Skagfirðinga hvað lækni
snerti. Þetta var ekki sagt til ámælis hinum vinsæla
lækni Húnvetninga i þann tíð, prúðmenninu Jóni Jóns-
syni, sem hafði margt til sins ágætis, var meðal ann-
ars annálaður fæðingarlæknir og góður tannlæknir.
En Jónas Kristjánsson hafði það framyfir flesta stétt-
arhræður sína, að hann beitti hnífnum af mikilli list.
Upp úr því hefir ætíð verið mikið lagt, í okkar landi
sem annars staðar, og má með sanni segja, að aðrir
læknar liafi, a. m. k. síðustu áratugi eða jafnvel aldir,
staðið í skugga skurðlæknanna. Afrekum þeirra hefir
verið mjög á loft haldið, og' með réttu, en færri sögum
farið af lyflæknunum.
IJefði Jónas Kristjánsson farið troðnar slóðir, mundi
nafn hans hafa geymzt sem eins vinsælasta og bezta
Iæknis síns tíma og sem öðlings í hvívetna. En nú hvei’fa
þesir kostir í skuggann fyrir þvi brautryðjandastarfi,
sem hann lielgaði síðari hluta langrar starfsævi.
Fyrir rúmum 40 árum bárust þær fregnir vestur í
Húnavatnssýslur, að læknir Skagfirðinga væri tekinn
að predika ákaft gegn kaffi, sykri og hvitu hveiti og
hafnaði öllum slíkum góðgjörðuni á læknisferðum sín-
um. Boðskapur lians um skaðsemi þessara fæðuteg-
unda fann víða góðan jarðveg; ég og' bræður mínir
tveir, sem vorum nýbyrjaðir að drekka kaffi, hættum
því með öllu og drukkum í þess stað blátt vatn eða
mjólk.
Jónasi Kristjánssyni varð snemma ljóst, að eitthvað
hlaut að vera meira en lítið bogið við lifnaðarhætti
okkar, svo mjög sem alls konar vesöld og sjúkdómar
færðust í vöxt, svo að segja ár frá ári. Hann hafði
fregnir af erlendum læknum, sem héldu því fram, að
flestir sjúkdómar stöfuðu af röngum lífsháttum og að