Heilsuvernd - 01.05.1960, Side 55

Heilsuvernd - 01.05.1960, Side 55
HEILSUVERND 53 Það er aldrei heiglum hent að brjóta nýjar leiðir, og ef til vill hvergi örðugra en á sviði læknisfræði. Náttúrulækningastefnan er að réttu lagi jafngömul læknisfræðinni. Hippókrates, „faðir læknisfræðinnar“, var náttúrulæknir í sannasta skilningi þess orðs. Hann var Grikki, uppi um 400 f. Kr. Síðan liafa á öllum öld- um verið uppi lærðir læknar, sumir víðkunnir, sem hafa haldið því fram, að með réttum lífsháttum sé hægt að varðveita eðlilega heilbrigði og lækna flesta sjúkdóma, og hafa starfað samkvæmt því. Af almenn- ingi liafa þessir læknar jafnan átt miklu fylgi og vin- sældum að fagna, en að sama skapi örðugt uppdrátt- ar gagnvart stéttarbræðrum sínum, sem jafnan hafa litið á þá sem skottulækna og spillt fyrir þeim á all- an hátt. Jónas Kristjánsson gekk þess ekkj dulinn, að hér yðri einnig við ramman reip að draga. En hann hófst ótrauður handa um að flytja löndum sínum liinn aldagamla boðskap um gildi náttúrlegra lifnaðarhátta. Hann átti því láni að fagna að sjá ávöxt af þessu starfi sinu, sem hann sjálfur taldi miklu veigameira en af- rek lians sem héraðslæknis. Með ljósum rökum i ræðu og riti náði liann eyrum þúsunda landa sinna, og senni- lega á náttúrulækningastefnan hvergi eins miklu fylgi að fagna meðal leikmanna og á íslandi. Það sýnir m. a. hin mikla aðsókn að heilsuhælinu í Hveragerði, félagatala NLFÍ og litbreiðsla Heilsuverndar og ann- arra rita NLFÍ. í Þýzkalandi, en þar dvelur undirritaður, þegar þetta er skrifað, hefir fjöldi lærðra lækna gengið náttúru- lækningastefnunni á hönd í starfi sínu og lífsháttum, og hafa margir þeirra komið sér upp hælum, sem eru viðurkennd af heilbrigðisstjórninni og sjúkrasamlög- um, er greiða oft hluta dvalarkostnaðar. Eins og að líkum lætur, fara þessir læknar hver sina leið i ein- stökum atriðum, þó að meginstefnan sé ein og hin sama. Og innan náttúrulækningastefnunnar hafa mynd-

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.