Heilsuvernd - 01.05.1960, Blaðsíða 56
54
HEILSUVERND
ast fylkingar, sem skipa sér um ákveðinn forvígismann,
svo sem Bircher Benner, Nolfi, Waerland. Jónas Krist-
jánsson þekkti sjálfur þessa þrjá forvígismenn náttúrn-
lækningastefnunnar, auk margra annarra, og sérstak-
lega náin kynni liafði hann af Waerland og frú Nolfi,
sem liann dáði mjög, og var sú aðdáun gagnkvæm.
Þau Nolfi og' Waerland greindi mjög á um leiðir að
markinu: Fullkomin heilbrigði. Jónas Kristjánsson
fylgdi engum ákveðnum flokki. Hann var opinn fyrir
öllum nýjungum og stefnum og reyndi að velja úr
það, sem hann taldi réttast og bezt henta. Af þessum
þrfemur brautryðjendum var Jónas elstur, fimm árum
eldri en Waerland og tíu árum eldri en frú Nolfi. Og'
nú eru þau öll fallin í valinn eftir vel unnið dagsverk.
Mér er ekki grunlaust um, að Jónas Kristjánsson
hafi alið sjálfsásakanir í brjósti tvö síðustu ár ævi
sinnar vegna sjúkleika síns, er túlka mætti sem ósigur
fyrir kenningar hans. Hann hafði eitt sinn orð á þessu
við mig, en gat þess jafnframt, að þrátt fyrir heztu
viðleitni væri mönnum fyrirmunað að afla sér óspilltr-
ar fæðu, m. a. vegna þess, að flest matvæli eru fram-
leidd með tilhúnum áburði og menguð skaðlegum efn-
um til varnar sjúkdómum eða meindýrum, og auk þess
væri ekki hægt að afmá merki hálfrar aldrar óskyn-
samlegra lifnaðarhátta. Hitt lét hann ósagt, að með
lífi sínu hefir hann gefið þjóðinni fordæmi, ekki að-
eins með því að halda lieilsu og kröftum til hárrar
elli, þrátt fyrir erfitt og' þrotlaust starf, heldur með því
að sýna í verki, hve miklu má til leiðar koma til lækn-
inga sjúkdóma með aðferðum þeim, sem hann beitti
hin síðustu ár í læknisstarfi sínu.
Fyrir okkúr, sem höfum átt því láni að fagna að
vinna með Jónasi Kristjánssyni að hugsjónamálum
hans, er nú skarð fyrir skildi, þegar liann er fallinn
í valinn. Það skarð verður aldrei fyllt. Hann hefir að
vísu aflað sér ötulla aðstoðarmanna, sem niunu lialda