Heilsuvernd - 01.12.1972, Side 9

Heilsuvernd - 01.12.1972, Side 9
BJÖRN L. JÓNSSON LÆKNIR Eggjahvifa og iþróttir Frá gamalli tíð hefir það verið bjargföst trú margra næringar- fræðinga, að þeir sem leggja á sig mikið líkamlegt erfiði, þarfnist margfalt meiri eggjahvítu í daglegu fæði en aðrir. Hefir þetta verið talið gilda ekki hvað sízt um íþróttamenn í þjálfun og í keppni, t.d. á Ólympíuleikum. Eggjahvítuþörf er almennt talin 60—70 g á dag, en ætti að sumra hyggju að þrefaldast í keppni og nema 180—210 g. Reynslan hefir þó sýnt, að slík eggjahvítu- neyzla er síður en svo vænleg til árangurs. Þrátt fyrir það voru þess dæmi, að Svisslendingar efndu til samskota fyrir íþrótta- menn, sem sendir skyldu á Ólympíuleikana í Mexíkó og höfðu ekki efni á að gæða sér daglega á rándýrri nautasteik. Til viðhalds vöðvum og öðrum líkamsvefjum þarf líkami manna við venjuleg störf ekki nema um 20 g geggjahvítu á dag, eins og rannsóknir hafa sýnt og sannað. Við aukið erfiði hækkar þessi tala að sjálfsögðu eitthvað, en þó ekki meira en svo, að með 60—70 grömmum á öllu að vera borgið. Það hefir meira að segja verið sannað á óyggjandi hátt, að án matar geta menn innt af hendi mikið erfiði dögum saman. Árið 1964 lögðu 19 Svíar upp í 500 km göngu frá Kalmar til Stokkhólms. Þeir voru 10 daga á leiðinni og gengu þannig að meðaltali 50 km á dag, án matar, drukku aðeins vatn. Þeir voru undir ströngu lækniseftirliti allan tímann og náðu lokaáfanganum allir sem einn heilir heilsu og í ágætu ástandi. Meðal þeirra voru nokkrir jurtaneytendur, sem höfðu ekki borðað kjöt eða fisk um lengri eða skemmri tíma, áður en gangan hófst, og í göngunni höfðu þeir létzt minna en hinir. Eggjahvíta, sem líkaminn þarfnast ekki daglega til að bæta upp slit á vefjum sínum, brotnar niður við efnaskiptin í einfald- ari efnasambönd, en getur ekki safnast fyrir í líkamanum. Við HEILSUVERND 169

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.