Heilsuvernd - 01.12.1972, Blaðsíða 18
Fundur í NLFR
Fyrsti fundur Náttúrulækningafélags Reykjavíkur á starfsárinu
var haldinn í húsi Guðspekifélagsins við Ingólfsstræti fimmtu-
daginn 12. okt. Formaður félagsins, Eggert Kristinsson, stjórnaði
fundi og skýrði frá því, að félagsstjórnin hefði ákveðið, að fyrst
um sinn yrðu til skiptis umræðufundir og fræðslufundir.
Eftir að fundargerð síðasta fundar hafði verið lesin og sam-
þykkt, flutti Árni Ásbjarnarson, forstjóri samtakanna, erindi um
sumarstarfið. Sumt af því hefir þegar komið fram hér í ritinu,
svo sem lokun matstofunnar og matreiðslunámskeiðið á Húsavík.
Tillöguuppdráttur hefir verið gerður að nýju hæli á lóð núverandi
hælis í Hveragerði, og hafa verið gefin út hlutdeildarskuldabréf til
að afla fjár í bygginguna. í hælinu hefir trésmíðaverkstæði verið
komið upp og nýtt íbúðarhús byggt fyrir starfsfólk. Fyrirhuguðu
hæli á Norðurlandi hefir enn ekki verið valinn staður, en Akur-
eyrarbær hefir boðið land og lofað einnar milljón króna framlagi
til byggingarinnar, og happdrætti er í gangi. Pöntunarfélag NLFR
hefir komið upp nýju bakaríi í stað þess gamla, sem var orðið of
lítið og ófullnægjandi. Á jarðeign NLFÍ í Sogni hefir verið borað
fyrir heitu vatni og fengizt tæplega 100 stiga heitt vatn í ríflegu
magni, og þar er nú í byggingu íbúðarhús, sem ætlað er fyrir
barnaheimili. Þá hefir NLFÍ fest kaup á heilsuræktarstöðinni
Eddu, sem Eiður Sigurðsson stjórnar, og gengur reksturinn vel.
Þar eru allskonar áhöld til æfinga og aðstaða til að koma upp
böðum og nuddi.
Að erindi Árna loknu urðu almennar umræður, og tóku margir
til máls.
AFRÍKUNEGRAR LAUSIR VIÐ MENN INGARSJÚKDÓM A
Enskur læknir, Dennis C. Burkitt að nafni, skýrði nýlega frá
því í fyrirlestri, er hann flutti við háskólann í Frankfurt í Þýzka-
landi — en þangað var honum boðið til að taka á móti verðlaunum
fyrir störf á sviði læknisfræðinnar —, að meðal negra í ríkinu
Uganda í Austur-Afríku væru bakteríusjúkdómar og aðrir sjúk-
dómar, sem orsakast af sníkjudýrum, algengir, en hinir svokölluðu
178
HEILSUVERND