Heilsuvernd - 01.12.1972, Blaðsíða 22
A víö og dreif
Eggjahvíta og; æðakölkun
Það er haft eftir þekktum sér-
fræðingi í meinafræði við háskól-
ann í Harvard í Bandaríkjunum, S.
McCully að nafni, að þegar mikils
sé neytt af kjöti, eggjum og osti, en
i þessum matvælum er mikið af
amínósýrunni metíónín, breytist
hún í aðra amínósýru, homocystein.
Úr henni myndast svo eggjahvítu-
efni, sem setjast í æðaveggi, en við
það missa þeir þanþol sitt og verða
harðir og lítt sveigjanlegir. 1 þessu
m.a. er hin svokallaða æðakölkun
fólgin. Og sumir telja þessar breyt-
ingar undanfara þess, að kólesteról
og fleiri efni setjist innan á æða-
veggina og þrengi þannig æðarnar.
(Halso-nytt)
Keykingar og andvana fæðingar
Athuganir gerðar af brezkum
læknum hafa leitt í jós, að um 1500
börn fæðast andvana eða deyja
skömmu eftir fæðingu í Bretlandi
árlega sem afleiðing af því, að kon-
urnar reykja um meðgöngutímann.
(Keform-Kundschau)
Beykingar á vinnustöðum
og í járnbrautum
Nýleg skoðanakönnun hefir sýnt,
að 81% manna eru á móti reyking-
um á vinnustað. Einu ári áður var
sambærileg tala 76%. Þeim fer
stöðugt fjölgandi, sem óska eftir
járnbrautarklefum, þar sem reyk-
ingar eru bannaðar, þannig að slík-
um klefum hefir þurft að fjölga. Til
skamms tíma voru reykingaklefar
miklu fleiri en Jainir, en eru nú
álíka margir.
(Bef orm-Rundschau)
Eyfjum að kenna
Ríflega 60 af hundraði allra kvart-
ana sjúklinga í sjúkrahúsum eiga
rót sina að rekja til lyfja, sem þeir
hafa notað að fyrirsögn lækna, segir
yfirmaður lyfjadeildar læknaskól-
ans í Stanford. (Eet’s Live)
Barnauppeldi í Þýzkalandi
Tveir þriðju hlutar foreldra í
Vestur-Þýzkalandi virðast líta á
barsmíðar sem beztu uppeldisað-
ferðina. Börnum er oft misþyrmt,
og verður það sjaldnast uppvíst.
(Beform-Bimdschau)
Skriftamál læknis fyrir 70 árum
Þegar öllu er á botninn hvolft,
þá er ég engan veginn sannfærður
um, að mortalitet (dánartala)
landsmanna vaxi til verulegra
muna ,þótt allir læknar væru
horfnir.
(Guðmundur Hannesson, Lækna^
blaðið 1902)
Offita I Þýzkalandi
Þýzka heilbrigðisstjórnin hefir
látið fara fram skoðanakönnun á
því, hvort fólk yfir fimmtiu ára
aldri telji sig of feitt. Um 40%
þeirra aðspurðu töldu svo vera, og
i þeim hópi voru aðeins fleiri konur
en karlar.
(Reform-Rundschau)
182
HEILSUVERND