Heilsuvernd - 01.12.1972, Síða 10
slíkan bruna eggjahvítunnar myndast orka, líkt og við niðurbrot
fitu og kolvetna, en nokkur hluti skilst út úr líkamanum gegnum
nýrun. Þetta reynir mjög á þessi þýðingarmiklu líffæri, sem bila
oft hjá íþróttamönnum á bezta aldri, og samfara því er jafnan
hár blóðþrýstingur.
Rannsókn á 120 íþróttamönnum leiddi í ljós, að ef eggjahvítu-
neyzlan fór fram úr raunverulegri eggjahvítuþörf líkamans, þann-
ig að nokkur hluti eggjahvítunnar fór til orkuframleiðslu, varð
orkueyðslan, þ.e.a.s. næringarþörfin, reiknuð í hitaeiningum, allt
að einum fjórða meiri en ef þeir hefðu borðað meira af kolvetna-
og fitufæðu en minna af eggjahvítu. Þessi rannsókn varð til þess,
að læknirinn E.A.Schmid gerði tilraun á sjálfum sér. í hálft þriðja
ár iðkaði hann erfiðar fjallgöngur og aðrar háfjallaíþróttir og
hagaði mataræði sínu á þann veg, að eggjahvítan fór ekki veru-
lega fram úr raunverulegri eggjahvítuþörf, nægilegri til að við-
halda vöðvum og öðrum vefjum, svo og hormónum og öðrum
vessum, sem innihalda eggjahvítuefni. Hann borðaði lítið eitt af
ostum, en hvorki egg, kjöt né fisk, og dagleg eggjahvítuneyzla
var milli 40 og 80 g (maðurinn var 80 kg á þyngd). Hann hafði
áður borðað sem svaraði 3000 til 3600 hitaeiningum á dag, en
þennan tíma fór hitaeiningaþörfin niður í 2400, að óbreyttum
líkamsþunga. Hann var laus við svita og þorsta, þannig að hann
þurfti enga svaladrykki að flytja með sér á ferðum sínum, og matar-
birgðir gat hann minnkað um þriðjung. Samtímis sýndu mælingar,
að vöðvaafl hans jókst um 20—30%, en súrefnisþörf minnkaði
um 10—20%. Áður hafði hann þurft að hvíla sig dag og dag,
þegar hann var á fjallaferðum sínum langtímum saman; en brátt
þurfti hann ekki á slíku að halda, nóttin nægði honum til að af-
þreytast, og stuttar hvíldir að deginum komu honum að sömu
notum og langar hvíldir áður; á hálftíma var hann endurnærður
eftir þreytandi göngur. Síðar hafa aðrir komizt að svipuðum
niðurstöðum.
Margir methafar, karlar og konur, í ýmsum greinum íþrótta,
hafa afsannað þá kenningu, að nauðsynlegt sé að borða mikla
eggjahvítu til að vinna slík afrek.
(Að nokkru úr grein eftir dr. Ralph Bircher í Reform-Rundschau.)
170
HEILSUVERND