Heilsuvernd - 01.05.1982, Page 3

Heilsuvernd - 01.05.1982, Page 3
Útgefandi: Náttúrulækningafélag íslands Forseti: Zophonias Pétursson Ritnefnd: Gísli Ólafsson (ábm.), Freyr Bjartmarz, Roy Firus. Efni: Jónas Kristjánsson: Sagt fyrir 30 árum................... 2 Um hvítlauk.......................... 4 Læknir læknar sjálfan sig af krabba- meini................................ 5 Zophonías Pétursson: Bakverkur........................... 10 Lærið að matbúa sem einfaldast .... 14 Matur og Megin...................... 15 Rasmus A isaker: Saga af vanfóðrun með ofeldi........ 19 Þorgerður Hermannsdóttir: Austurlenskar alþýðulækningar........20 Ársæll Jónsson lœknir: Trefjaefni.......................... 25 Fróðleikskorn um helstu matjurtir okkar íslendinga.......................... 28 Forsiðumynd: Kartöfluupptaka eftir Gunnar Þorleifs- son. Afgreiðsla: Skrifstofa Náttúrulækningafélags ís- lands, Laugavegi 20B, sími 16371. Verð:40 kr. heftið. Prentun: Prenthúslð Til lesanda Við lendingu d Keflavíkurflug- velli eftir lengri eða skemmri dvöl erlendis, og ferðalangurin stígur út úr flugvélinni á íslenska jörð, þá er það fyrsta er gerist að hann staðnæmist sem snöggvast, dregur djúpt að sér andann, og finnur hið hreina og tæra loft fylla lungun. Gengur síðan hægum skrefum til flugvallarbyggingarinnar, og teygar að sér þetta hreina og tæra loft með djúpum og róleg- um andardrœtti. Þetta er gamal- kunnugt um fólk sem kemur til landsins: Þá er og fyrsta verk er heim kemur, að renna vatni í glas og drekka hægt í smáum sopum og njóta drykkjarins. Falla þá gjarnan nokkur blessunarorð um það, sem ísland hefir umfram önnur lönd. — Hið hreina loft og vatn. — Von við þá og óskum, að þessi gjöf til okkar, megi sem lengst hald- ast hrein og tær. Þetta h/ítur að verða enn staðfastara í hugum vorum er land þetta byggjum, er að mengun er farin að sækja að okkur úr öllum áttum. Mál sem mikið hefir verið rætt um undanfarið, og haldið hefir ver- ið heilt þing I sambandi við tannskemmdir. Jafnvel gengið svo langt að tala um, og í fullri alvöru að blanda Flour I heilsuvatn lands- manna. Nú er það svo að nær allt tannkrem er blandað með flour, og mætti leiða að því huga, að ef tennur væru vel burstaðar og skolaðar, þá ætti það að vera allt nægilegt, enda þótt ekki yrðu menn til þess neyddir að neita flour í öllu neysluvatni sínu. Enda ættu menn að minni hyggju vonandi að njóta þess frjálsræðis, að drekka hreint og ómengað vatn, svo lengi sem við eigum þess kost. Vonandi gerir enginn bæjarstjórn né löggjafarvald sig seka um nokkru sinni að leifa slíkt, og því síður að fyrirskipa það. Tannskemmdir Islendinga sem vissulega eru miklar, gætu e.t.v. frekar leitt hugann að stökkbreytingu á neysluvenjum landsmanna. Það má með nokkru sanni segja, að fólk I dag neyti minna harðmetis en áður var. Nútímahraðinn og skyndi borðhald, bæði kvölds og morgna leiðir til þess að matreitt verður það sem auðveldast er. Zophanías Pétursson forseti N.L.F.Í. Framhald á bls. 30 HEILSUVERND 1

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.