Heilsuvernd - 01.05.1982, Blaðsíða 11
hann hætti við estrogenið og
fimmtán mánuðum eftir að hann
byrjaði á macrobiotics matar-
ræði sýndi rannsóknin beina-
sneiðmyndir og gammamyndir
að Sattilaro var alveg laus við
krabbamein.
Allan þennan tíma hélt Satti-
laro nákvæma skýrslu, og það
ásamt því að hann er læknir, sem
er mikils metinn í starfi sínu,
hefur gert Sattilaro að mikilvirk-
um talsmanni macrobiotics sem
lækningaaðferð við krabbameini
og öðrum hrörnunarsjúkdóm-
um.
Enda þótt ekki sé enn búið að
ráða fram úr öllum vandamál-
um, er Sattilaro að vinna að því
að koma upp macrobiotic lækn-
ingastöð í einhverjum tengslum
við Methodist Hospital. Hann
segir þó að það séu gífurleg lög-
fræðileg vandamál samfara því
að læknir breyti út af viður-
kenndum lækningafræðilegum
aðferðum í meðferð sjúkdóma.
,,Ef læknir er lögsóttur fyrir
mistök í starfi, hvern getur hann
þá kallað til sem sérfræðilegt
vitni, sem dómstólar viður-
kenna? Venjulega dvelur sjúkl-
ingur ekki nema þrjár vikur á
sjúkrahúsi,“ segir Sattilaro.
„Það hefur tekið mig fimmtán
mánuði að breyta ástandi mínu,
hvað á að gera við sjúkling, sem
lifir á macrobiotics á sjúkrahús-
inu en fer heim í sitt daglega
starf og umhverfi og fær sér
fyrsta bitann af nautasteikinni?“
Hann bendir á, að meðan ekki sé
um að ræða skipulagt heilbrigð-
isstarfslið, sem heimsæki sjúkl-
inga og stundi macrobiotics, sé
gifurleg hætta á að slík lækn-
ingastöð muni mistakast. Satti-
laro vill gjarnan gera nákvæmar
tilraunir á stofnun, þar sem unnt
væri að fylgjast vandlega með
sjúklingunum. ,,Það sem þá
kemur fram, verður þannig, að
starfsbræður mínir geta endur-
tekið slíkar tilraunir og við mun-
um safna í upplýsingabanka,
sem myndi styðja að því að við
gætum gert slíkar tilraunir í stór-
um stíl.“
Sattilaro vinnur nú þegar með
mörgum sjúklingum, sjálfboða-
liðum með margvíslega sjúk-
dóma, þar á meðal krabbamein
og starfsfólk Methodist leitar til
hans eftir ráðleggingum hans
aðrir vísa vinum sínum til hans.
Þegar Giacobbo var spurður
að því, hvort hann myndi vísa
dauðvona sjúklingi til Sattilaro
til að reyna macrobiotics, svar-
aði hann: „Auðvitað, ég myndi
ekki hika við að vísa sjúklingi til
Tony, hann er mjög traustvekj-
andi og áreiðanlegur.“
Sattilaro reynir að sannfæra
starfsbræður sína og vinnur að
því að koma af stað tilraunum,
sem geta sannfært vísindaheim-
inn. En hver sem útkoman verð-
ur, þá nýtur hann lífsins nú. „Ég
er lifandi,“ segir hann, „og fyrir
mig er einföld skál af hýðishrís-
grjónum veislumatur.“
/z>\ '&sn 'rvi J%, vL ^
'f"—Zjm
HEILSUVERND 9