Heilsuvernd - 01.05.1982, Blaðsíða 19
Paprikusúpa
fyrir 4-6
2 grænar paprikur
1 rauð paprika
3 dl. púrra skorin í sneiðar
/i laukur
2A dl. hýðishrísgrjón, löng
3 matsk. smjörvi
1-2 dl. hvítar baunir — soðnar
/i matsk. mexikönsk krydd-
blanda
1 1. vatn + 4 tesk. jurtakraftur.
Skera paprikuna og hakka lauk-
inn, skera púrru í sneiðar.
Steikja lauk, hrísgrjón og mexik.
kryddbl. í smjörva — ekki
brúna, í 8 mínútur. Bæta þá í
papriku og púrru. Láta þetta
malla í 5 mínútur — hræra í.
Hella síðan yfir vatni með jurta-
krafti og sjóða í 5-7 mínútur.
Bæta þá við soðnum hvítum
baunum.
Bragðbætt með juitakryddi.
mynd 4
Grænmetissúpa
fyrir 4-6
/i laukur
2 gulrætur
1 græn paprika
1 púrra
2 dl. gulrófur
smjörvi
Jurtakrydd
/i dl. ertur
/i 1. vatn + 2 tesk. jurtakraftur
/i 1. léttmjólk + 2 matsk. heil-
hveiti
1- 2 dl. maískorn
2- 3 matsk. steinselja — fínskorin
Skera laukinn, brytja gulrætur,
gulrófu og papriku í litla bita og
sneiða púrruna í hringi. Láta
malla í 10 mín. í smjörvanum án
þes að brúnast. Bragðbætt með
jurtakryddi og /i tesk. karrý.
Bæta nú við ertum, vatni og
jurtakrafti og sjóða í 3 mínútur.
Blanda nú við mjólkinni með
heilhveiti og þykkja súpuna.
Sjóða í 4-6 mínútur.
Loks er maískorni og steinselju
bætt í.
Borið fram með rifnum osti.
Sjá mynd nr. 4
Mynd 4
HEILSUVERND 17