Heilsuvernd - 01.05.1982, Blaðsíða 24
ari teikningu að korntegundir
eru mest í jafnvægi. Það á að
forðast að borða fæðutegundir
sem eru lengst frá jafnvægis-
punktinum, eins er það Iíka regla
að borða mat sem er í jafnvæg-
inu 1 á móti 7, eða 1 hluta úr
Yang hópnum á móti 7 hlutum
úr Yin hópnum.
1. Um helmingur þess sem borð-
að er yfir daginn er kornmatur,
matreiddur á ýmsa vegu, bakað,
steikt eða soðið. Mest eru notuð
hýðishrísgrjón en einnig má nota
bygg, heiia hafra, rúg, heilt
hveiti, hirsi, bókhveiti, mais og
flögur alls konar. Rúgbrauð,
brauð úr grófum korntegundum
og flatbrauð úr grófum kornteg-
undum.
2. Minnst 5-10% af matnum yfir
daginn á að vera Misósúpa eða
grænmetissúpa krydduð
m/tamari eða Shoyu. Hráefnin í
súpuna geta verið grænmeti,
þang og baunir. Skifta oft um
uppskrift svo súpan verði ekki
leiðigjörn.
3. Ca. 25 % af hverri máltíð á
að vera grænmeti, 2/3 hlutar
soðið en 1/3 hluti sem hrásalat
eða gerjað eins og súrkál sem er
mjög gott fyrir meltinguna.
Ef mögulegt er, á að reyna að
fá lífrænt ræktað grænmeti og
best er að rækta grænmetið
sjálfur. Ekki má henda laufinu
af grænmeti eins og radísum,
gulrótum og rófum, það á að
nota bæði ræturnar og laufin,
því í laufinu er mikið af steinefn-
um og vítamínum sem fara for-
görðum ef þeim er hent.
4. 10% af matnum yfir daginn
má vera baunir og þang, dags-
daglega er best að nota Aduki-
baunir- Kjúklingabaunir og lins-
ur. Aðrar baunateg. má nota af
og til, til þess að auka á fjöl-
breytnina.
Þang á að nota á hverjum degi
22 HEILSUVERND
og má matreiða það á ýmsa
vegu, en einfaldast er að nota
það daglega í súpuna.
5. Um 10% má vera ávextir
eða fiskur og mætti t.d. borða
fisk tvisvar — þrisvar í viku en
ávexti afturámóti tvisvar í viku.
Hér á landi verðum við að
forðast ávexti sem vaxa í hita-
beltislöndum, en borða frekar
harðgera ávexti eins og epli og
perur.
Ávaxtasafa á ekki að drekka
dagsdaglega en er í lagi að nota á
sumrin í hitum.
6. Sem aukamat eða mat sem
bragðbætir, má nota fræ og
hnetur og verða þær fæðuteg-
undir auðmeltari ef þær eru rist-
aðar á þurri pönnu fyrst.
7. Drykkir sem mælt er með
eru: þriggja ára te, kornkaffi,
góð jurtate án litar eða ilmefna.
Fjallagrasate er mjög gott eins
blóðbergste og annað te úr ís-
lenskum jurtum, sem hægt er að
tina á sumrin og þurrka.
Matur sem ber að forðast
ef fólk vill bæta heilsufars-
ástand sitt.
Kjöt — dýrafita — draga úr
neyslu á mjólk og mjólkurafurð-
um — ávextir sem vaxa í hita-
beltislöndum — ávaxtasafi —
djús — gosdrykkir — kaffi —
litað og örvandi te — vín og spir-
itus — majónes og tilbúnar sósur
— pakkamatur — sykur — síróp
— saccarín og önnur gervisæti
efni — allt hreinsað og malað
korn eins og hvítt hveiti. Matur
sem er verksmiðjuframleiddur
eins og dósamatur, frystur og lit-
aður matur. Sterk krydd og edik
sem gerjað er með sykri.
Þær gtrænmetistegundir sem
ekki uppfylla kröfurnar um jafn-
vægi, það er grænmetið er of út-
víkkandi eða Yin er: tómatar,
kartöflur — spínat — aspas —
eggaldin — avacado — rauðróf-
ur og grænmeti upprunnið frá
hitabeltislöndum.
Borðið 2-3 máltíðir á dag og á
vissum matmálstímum. Það má
borða eins mikið og hvern lystir
svo framarlega að maturinn sé í
jafnvægi og þess gætt að tyggja
nógu vel, því mikill hluti fæðis-
ins eru kolvetni og þau byrja að
meltast í munninum, þess vegna
er það mjög mikilvægt að tyggja
nógu vel til að létta meltingar-
starfsemina.
Það ætti enginn að borða 3
tímum fyrir svefn.
Drekkið lítinn vökva og aðeins
þegar ykkur þyrstir.
Ef ykkur langar enn í kjöt þá
reynið að hafa hlutfallið ekki
meira en 15% af máltíðinni.
Þetta er matarræðið í grófum
dráttum og er ekki sama við
hvaða skilyrði við búum, við bú-
um t.d. við kalda veðráttu og
þurfum því á mat að halda sem
gefur okkur hita og kraft, en aft-
ur á móti í heitum löndum þarf
maturinn að vera kælandi. Þess
vegna getum við borðað fisk, en
dregið úr ávöxtum, því fiskurinn
tilheyrir þeim flokknum sem
þéttir og gefur orku en ávextir
þeim flokknum sem útvíkkar og
kælir.
Eins á að gera greinarmun á
hvernig matreitt er eftir árstíma,
á veturna notum við meiri steik-
ingu, lengri suðu, bragðmeiri
mat, og kraftmeiri mat til að
gefa hita og orku.
Á sumrin þarf léttari mat-
reiðslu, minna saltan mat, meiri
hrásalöt og oftar ávexti.
Þær matvælategundir sem
kunna að koma fólki spánskt
fyrir sjónir ætla ég að útskýra
svolítið nánar.
Misó (hefur fengist í Korn-