Heilsuvernd - 01.05.1982, Side 25
markaðnum). Er gerjað úr soja-
baunum ásamt einhverjum korn-
tegundum og salti og við það fást
mismunandi gerðir af mísó.
Blandan er látin gerjast í ca. 18
mánuði og geymist án þess að
bætt sé í misóið rotvarnarefnum.
Þetta er ákaflega holl fæðuteg-
und, vegna þess að hún inniheld-
ur mjólkursýrubakteriur sem,
styrkja þarmastarfsemina, styrk-
ir veikburða meltingarfæri, eyk-
ur á útskilnað eiturefna úr lík-
amanum. Misó inniheldur eggja-
hvítu, kalk, járn og B vitamín.
Misó inniheldur líka Bj^ víta-
mín sem margir halda fram að sé
erfitt að fá úr öðrum mat en
kjöti.
Shoyu eða Tamari. (hefur
fengist í Kornmarkaðnum) er
líka úr sojabaunum sem eru látn-
ar gerjast m/vatni og salti í 18
mánuði og innihalda mikils til
sömu efni og Misó.
Þang: Hér áður fyrr borðuð-
um við íslendingar miklu meira
af þangi en nú er gert og notuð-
um við aðallega sölin, en hér við
land eru miklu fleiri tegundir
sem nýta má til manneldis. í
þanginu er ótal steinefni og snef-
ilefni sem eru okkur nauðsynleg,
og að auki hefur þangið þann
eiginleika að draga í sig mengun
úr líkamanum og skilur mengun-
ina út með saur og öðrum lík-
amsvessum.
Þang má matreiða á margan
hátt bæði í salöt, soðið m/græn-
meti og í súpur sem er mjög ljúf-
fengt. Þang hefur fengist í Man-
illa.
Sölin er mjög gott að nota á
eftirfarandi hátt: Rista þau í ofni
við meðalhita, mylja þau í duft
og nota sem salt út á mat.
Þangið inniheldur líka B j^
vítamin ásamt folinsýru og fleiri
vitamin.
Þriggja ára te: (hefur fengist í
Kornmarkaðnum). Þetta eru
stönglar og neðstu blöðin af
græna terunnanum og blöðin eru
látin vera á jurtinni í 3 ár áður en
þau eru tínd. Teið er ristað á
þurri pönnu og geymt síðan í
krukku m/góðu loki.
Teið er síðan soðið og seyðið
drukkið. Ekki má henda te-
stönglunum því það er hægt að
nota sömu stönglana í fjögur
skipti. Þetta er mjög næringar-
ríkt te og inniheldur m.a. mikið
kalk.
Ég hef hér stiklað á stóru í
sambandi við matarræðið en
hvernig hægt er að breyta á-
standi hvers og eins fyrir sig er
svo önnur saga og kemur þar
margt til greina eins og hvað við-
komandi hefur borðað áður fyrr
og er hægt að lagfæra núverandi
ástand með matarræði sem hent-
ar hverjum og einum bæði með
því að benda á ýmis meðul og
bakstra sem hver og einn getur
soðið og útbúið sjálfur, en um
það efni er ekki hægt að gefa
neina algilda reglu þar sem það
fer eftir ástandi hvers einstakl-
ings fyrir sig.
Að lokum ætla ég svo til gam-
ans að segja frá því sem ég hef
lagt stund á þessi undanfarin
sumur við skólann.
1. Heimspekina á bak við kenn-
inguna, í hverju Yin og Yang er
fólgið.
2. Matarræði bæði almenna
matreiðslu og matreiðslu fyrir
sjúka.
3. Shiatsu nudd, sem kalla mætti
nálarstungunudd því það byggir
á nálarstungupunktunum. Eru
þeir örvaðir til þess að koma á
réttu orkustreymi um líkamann
og losa um stíflur sem myndast
hafa.
4. Sjálfsnudd sem byggir á sömu
aðferð og Shiatsu, en sjálfsnudd
getur hver og einn notað á sjálf-
an sig án mikillar fyrirhafnar,
það stuðlar líka að því að losa
um stiflur og koma réttu orku-
streymi af stað um líkamann.
5. Réttingaræfingar.
6. Geymsluaðferðir á mat eins og
t.d. að sýra grænmeti og útbúa
fyrir veturinn án þess að nota
sykur eða rotvarnarefni. Eins að
útbúa afurðir eins og Tofu, og
aðrar afurðir úr sojabaunum.
7. Aikidó eða bardagalist og má
nota sem sjálfsvörn.
8. Læra að taka eftir ytri ein-
kennum sem geta bent á hvað
amar að hverjum og einum og
ráðleggja matarræði og æfingar
eftir því.
Þetta er mjög skemmtilegt og
fróðlegt nám og ef einhverjir
fleiri hafa áhuga á þessum
efnum læt ég heimilisfangið í
skólanum fylgja með.
The Michio Kuski Institute of
London
188 Old street
London E.C.I. England.
Hér kemur sýnishorn af því sem
ég borða yfir daginn.
Morgunmatur: Grautur úr
neilum höfrum og byggi eða
hafraflögum. Heilir hafrar skol-
aðir kvöldinu áður og soðnir í
vatni og örlitlu salti, slökkt á
hellunni og potturinn látinn
standa á hellunni til næsta dags,
þá bæti ég byggflögum út í og
sýð áfram.
Sem útálát rista ég á þurri
pönnu sólblómafræ og steinka
yfir þau shoyu.
Hádegismatur: Hrisgrjóna-
bollur og soðið grænmeti.
Bollurnar bý ég út á þann hátt
að ég sýð 1 bolla af hýðisgrjón-
HEILSUVERND 23