Fréttablaðið - 11.12.2021, Side 40

Fréttablaðið - 11.12.2021, Side 40
Ég trúi alltaf svolítið á að þetta sé níutíu prósent heppni. Ólafur Arnalds frumflutti í sumar lög af nýjustu breið- skífu sinni, Some Kind of Peace, í hringleikahúsinu Odeon í Aþenu og ræddi í framhaldi við söngkonuna og rithöfundinn Hlín Leifsdóttur um tengsl og tengslaleysi, sigra og áskoranir á erfiðum tímum. Þegar tré fellur í skógi, en enginn heyrir, kemur samt hljóð?“ er spurt í gamalli ráðgátu . Á tímum samkomu banna glíma margir listamenn við til- vistarspurningar í anda hennar. Fyrir utan fjárhagslegt tjón upplifa margir f lytjendur ákveðið tengsla- leysi við að sjá aðdáendur aldrei bregðast við listinni í raunheimum. En listin finnur sér alltaf leið. Ólafur Arnalds er einn þeirra sem hafa uppskorið ríkulega fyrir starf sitt í þágu listarinnar á erfiðum tímum. Í nóvember voru Loom og Bottom Line, tvö laganna á nýjustu breið- skífu hans Some Kind of Peace, til- nefnd til Grammy-verðlaunanna. Breiðskífan var frumflutt í Aþenu í júlí síðastliðnum á fyrstu tónleikum Ólafs eftir langt hlé. Fokk! Á heitu sumarkvöldi, lágt í hlíðum Akrópólis, gengur látlaus ungur maður inn á sviðið í nærri tvö þúsund ára gömlu hringleikahúsi. Hann lítur ráðvilltur í kringum sig, virðir fyrir sér þúsundir andlita, f lóðlýst hofin sem gnæfa fyrir ofan leikhúsið og stjörnurnar á nætur- himninum. Hann gleymir stund og stað, og þúsundum sem horfa á hann, þar til hann rankar loks við sér og segir stundarhátt: Fokk! Áhorfendaskarinn brestur í hlátur. Ekkert gat verið jafn óvænt á jafn virðulegum stað og einmitt þetta orð. Ekkert gat heldur verið jafn einlægt. „Þetta er það sem fólk elskar við hann,“ útskýrir sessunautur minn, Vasilis. „Hann er svo eðlilegur. Hann er ekkert virðulegur, skilurðu, bara svona strákurinn í næsta húsi.“ Síðan horfir hann í kringum sig með stjörnur í augunum. „Þetta er stóri draumurinn minn,“ segir hann, „að fá að spila hérna.“ Vasilis er ekki sá eini. Fyrir neðan hringleikahúsið er löng göngugata full af tónlistarmönnum af öllum toga sem virða fyrir sér f lóðlýst leikhúsið á meðan þeir spila fyrir vegfarendur. Ég hef oft tekið þá tali og allir sögðu þeir að æðsti draum- ur þeirra væri að spila á sviðinu í Odeon. Frá göngugötunni að svið- inu í hringleikhúsinu er örstutt leið sem þó er óralöng og fáum fær. Ætli sviðið í Odeon hafi ekki einnig verið helsti draumur allra listamanna Aþenuborgar fyrir nærri tvö þús- und árum? Nú stendur Íslendingurinn á þessu langþráða sviði á fyrstu tón- leikum sínum síðan Covid hófst. Að vísu kom síðasta breiðskífan hans út einhverjum mánuð- um fyrr, en hafði þó ekki verið spiluð á sviði. Áður en hann hefur f lutninginn trúir hann áhorf- endum fyrir því að þangað til þetta kvöld hafi honum l iðið eins og breiðskífan væri aðeins blekking, nánast eins og hann hefði bara dreymt hana. Þ v í a ð e i n s áhorfendur af holdi og blóði geti gert hugarfóstur hans áþreifanlegt. Nú getur hann loksins meðtekið að það sé raun- verulega komið í heiminn. Þakkaði ömmu sinni Ólafur setur tóninn með því að gefa áhorfendum hann. Hann spilar tón, biður áhorfendur að taka undir, og á meðan þeir syngja tekur hann raddir þeirra upp. Síðan blandar hann upptökunni inn í tónlistina það sem eftir er. Allt í einu er eins og áhorfendur eigi hlutdeild í tón- leikunum, séu eitthvað meira en vitni að þessu undri. Rödd hvers einasta mannsbarns í salnum berst frá fornfræga sviðinu og við upp- lifum að einhvern veginn séum við öll orðin hluti af þessu listaverki. Það er fallegt og stjörnubjart kvöld og einhvern veginn er eins og við séum öll líka orðin stjörnur. Það verður ljóst þegar líður á kvöldið að óformleg og einlæg fram- koma listamannsins heillar aðdá- endur hans ekki síður en tónlistin. Fyrir vikið hverfur fjarlægðin sem er venjulega milli tónlistarmanna og áhorfenda. Það er eins og þarna sé strákurinn í næsta húsi kominn til að spila tónlistina sína. Og þegar Ólafur fer að tala um ömmu sína, Ásdísi Andrésdóttur Arnalds frá Neðra-Hálsi í Kjós, sem lét hann alltaf hlusta á klassíska tónlist þegar hann kom í heimsókn og hann þakkar fyrir að hafa gert sig að tónlistarmanni, líður okkur eins og við höfum óvænt lent á trúnó við listamanninn. Ólafur leikur svo fyrir okkur lag sem hann samdi til minningar um ömmu sína. Hann er einn á sviðinu að spila, án hljóm- sveitar, en á ákveðnum tímapunkti heyrum við hljóðfæri, sem ekki sjást á sviðinu, svara laglínunni, rétt eins og þarna sé amman að svara honum úr handanheimum. Sjaldan hefur maður séð fleiri tár falla á tónleik- um en á þessu magnaða augnabliki. Gleðin er þó nær en sorgin í Odeon þetta kvöld og hlátrasköllin ekki færri en á vel heppnuðu uppi- standskvöldi. Þetta má ekki síst þakka því hvernig Ólafur höndlar óvæntar aðstæður, eins og þegar hávær skordýr taka undir tónlist- ina af miklum móð, og hann horfir gremjulega upp í loftið, kvartar yfir „samkeppninni“ og áhorfendaskar- inn brestur í hlátur. Nándin mikilvæg Eftir tónleikana leikur mér forvitni á að vita hvort óvenju frjálsleg sviðs- framkoma listamannsins sé í raun meðvituð. Það reynist rétt. „Ég ólst upp í pönkinu,“ segir Ólafur, „þar sem það þótti ekkert spennandi að tónlistarfólkið væri á einhverjum öðrum stalli en áhorfendurnir. Menn voru rosa mikið að stunda það að spila bara á gólfinu til dæmis, fyrir framan sviðið, til að vera á jafningjagrundvelli.“ Þegar Ólafur varð frægur og fór að spila í stærri höllum fannst honum eins og þessu nána sambandi áhorf- enda og tónlistarmanns sem hann upplifði í minni sölum pönksins væri ógnað af virðuleika og stærð nýrra salarkynna. „Það erfiðasta við að vera allt í einu að spila í þessum fínu tón- leikahöllum er að ég er allt í einu kominn á svo háan stall,“ segir hann. „Þetta byrjaði að vera ein- hvern veginn partur af þessu hjá mér, að það fyrsta sem ég þyrfti að gera væri að brjóta niður þessa spennu, þessa ímynd um að fólk sé að gera eitthvað „merkilegt“, og bara koma öllum meira niður á jafningja- grundvöll og þá náum við miklu meiri nánd, á milli mín og fólksins. Þá náum við einhverjum tengslum sem manneskjur, sem fyrir mér er Útkomna breiðskífan sem var samt ekki til Ólafur tekur upp raddir áhorfenda til að brjóta ísinn. MYND/ANNA MAGGÝ Hlín Leifsdóttir hlinleifsdottir @gmail.com miklu meira virði heldur en ein- hvers konar upphafning tónlistar- mannsins.“ Áhorfendur þátttakendur Skyldi þetta einnig vera ástæða þess að hann tekur upp raddir áhorf- enda? Ólafur játar því. „Ég man nú ekki alveg hvernig þetta byrjaði,“ segir hann, „en þetta hefur alltaf verið leið til að brjóta ísinn. Ef andrúms- loftið er eitthvað stíft þá virkar þetta rosalega vel til að brjóta það upp og fá alla til þess að slaka aðeins á og taka þessu ekki of alvarlega. Fá fólk til að taka þátt í músíkinni sem það er að hlusta á. Þá eru þau orðnir þátttakendur en ekki bara áhorf- endur. Þá er þetta orðið tveggja manna samtal.“ En hvaða ráð myndi Ólafur gefa þessum ótal sálum sem dreymir um að fá að koma fram á Odeon, stærsta draumi allra grískra tón- listarmanna? Hvernig ná menn svona langt? „Ég trúi alltaf svolítið á að þetta sé níutíu prósent heppni,“ segir Ólafur hógvær. „Réttur maður, á réttum tíma, með réttu tónlistina, er bara heppni. Ég er með þessa tón- list á tímum þar sem fólk vill heyra þessa tónlist. Það er bara einhvers 38 Helgin 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.