Strandapósturinn - 01.06.1967, Page 76
líkast grimmum hundum, en um leið og þeir rísa upp, berst
leikurinn venjulega samstundis í sjóinn með busli og óhljóðum.
Oft er það, að sjórinn lagar allur í blóði, þar sem brimlarnir
eigast við. Þeir bera glöggar menjar um þetta styrjaldarlíf, sést
það, ef komið er að þeim þar sem þeir liggja margir uppi, að
þeir eru eineygðir og hálsinn allur hárlaus bris og gömul ör.
Annars geta þessir stóru selir líka verið kyrrlátir og mjög
værukærir, þegar þeir liggja uppi og baka sig í sólinni.
Venjulega voru famar þrjár ferðir á vori. Það er að segja,
netin voru lögð þrisvar en stundum tekin upp með nokkurra
daga millibili — 4—5 dagar milli fyrstu og annarar ferðar og um
vika milli annarrar og þriðju. Komið gat fyrir að farið væri
fjórum sinnum.
Aður en ég kom að Kaldrananesi og nokkur ár eftir það, var
alltaf legið yfir netunum í skerjum, allt að sólarhring í fyrstu
ferð og lengur í þeim seinni, á þriðja sólarhring. Það var stundum
kaldsamt, þegar veður breyttist í hvassviðri á norðan, stundum
með rigningu. Ekkert var skýlið og berar klappir til að liggja á.
Fyrir kom það, að einhver kippti með sér reiðingsdýnu til þess
að liggja á, þegar fram í sker kæmi. Var ekki laust við, að
það þætti miður karlmannlegt. Oftast var hægt að láta bátinn
liggja í vognum, en fyrir gat það komið, að svo gengi í sjó, að
setja yrði hann hátt upp í sker. Var þá ekkert hægt um net
að hirða. Sætt var þó lagi, helzt um fjöru að ná þeim upp.
Þurfti þá varúðar að gæta að hætta sér ekki of nærri skerjunum
og boðum, þegar allt braut umhverfis.
Lá þá oft vel á mönnum, þegar vel hafði veiðzt að sigla hrað-
byri í land. Flest það sem ég man eftir voru 56 selir í einni
ferð. Veiddist þá alls yfir vorið 150. Það er hvoru tveggja,
veiði er orðin miklum mun minni en áður var, líka lakar
stunduð, því mannfæð er meiri, svo eru ýmis störf, svo sem
vegavinna o.fl. orðin svo vel borguð, að ekki þykir gerlegt að
liggja yfir lítilli veiði fram eftir vori.
A fyrri árum meðan selur hélt sig við skerin, þó legið væri í
þeim, var oft gaman að horfa á ýmsa tilburði hans. Selurinn er
ákaflega forvitinn og er það nokkuð þess vegna, hvað kópnum
74
i.