Strandapósturinn - 01.06.1998, Page 65
al þjóða og 'íslendingar rnenn meðal manna. Það er erfitt fyrir
nútíma Islendinga að gera sér í hugarlund, hversu gífurlega þýð-
ingu þetta hafði fyrir alla landsmenn. Bjartsýni jókst og trúin á
framtíðina festi rætur. Þjóðin hafði barist fyrir sjálfstæði sínu, nú
var það fengið og menn voru staðráðnir í að sýna Dönum og öll-
um heiminum að þjóðin gæti séð um sig sjálf þrátt fyrir allar
hrakspár. Þetta hafði áhrif inn til innstu dala og út til ystu nesja.
Þessi þrautpínda þjóð hafði loksins vaknað, gekk ekki lengur í
svefni, bogin í baki og hnýtt eftir árhundraða kúgun og harð-
ræði. Þessi vakning sagði líka til sín á litla býlinu í Hraundal.
Frostaveturinn mikli var liðinn. Spænska veikin var um garð
gengin. Nú hlaut að koma betri tíð með blóm í haga.
En Island var enn á sínum stað. Veturinn 1919 var með ein-
dæmum snjóþungur. Gífurleg snjóflóð féllu á Siglufirði og 27
manns létu lífið. Vestfirðingar fóru ekki varhluta af þessum
harðindum þótt snjóþyngslin væru ekki eins mikil og á Norður-
landi.
Sumarið eftir eignuðust Islendingar sína fyrstu flugvél og síð-
an hefur flugið orðið sífellt snarari þáttur í þjóðlíftnu. Það sum-
ar unnu Islendingar Dani í fyrsta sinn í knattspyrnu og það hef-
ur ekki skeð síðan í hartnær 80 ár. Fótatak nýja tímans heyrðist
alla leið upp í innstu dali.
Ekki er að efa að sú bjartsýni er ríkti í þjóðfélaginu hefur haft
sín áhrif í Hraundal. Að minnsta kosti réðist Pétur í að kaupa
jörðina, þó ekki hafi hann haft peninga til að leggja út fýrir
henni. Hann hefur því orðið að útvega sér lán og lán fæst ekki
nerna með ábyrgðarmönnum. Svo virðist sem ekki hafi staðið á
því að sveitungar hans hafi gengið í ábyrgð fýrir hann því lán
fékk hann í Islandsbanka á Isafirði upp á kr. 3.000. Samningur
var svo gerður á Laugabóli 6. júní 1919 og afsal fýrir jörðinni
gefið út að Arngerðareyri 19. júlí sama ár. Seljandi var Jón Jóns-
son Tröllatungu í Strandasýslu, sem virðist hafa fengið jörðina í
arf. Kaupverðið var kr. 4.000, sem hlýtur að teljast hátt fýrir jörð,
sem metin var á 12 hundruð að fornu mati.
Ekki er annað að sjá en Pétur hafi greitt jörðina að fullu og
þá með lánsfé, í ábyrgð gengust þeir Kristján Kristjánsson, bóndi
á Nauteyri, Jóhann Skjaldal, bóndi á Skjaldfönn, Hávarður Guð-
63