Syrpa - 01.02.1947, Qupperneq 20

Syrpa - 01.02.1947, Qupperneq 20
ALFREÐ GÍSLASDN, læknir *j£)r(jLhibLól?cipur. VARNIR □□ MEÐFERÐ. Það mun vera almannarómur, að drykkjuskapur hafi aukizt stórkostlega hér á landi síðari árin og sé þegar orðinn þjóðarvoði. Opinberlega heyrast nú æ fleiri raddir, er krefjast úrbóta í þessum efn- um, og margt nýtra tillagna er þegar fram komið. Ofdrykkjumenn eru þeir áfengisneytendur nefndir, sem svo hafa misst taumhald á drykkju- hneigð sinni, að allir aðrir þættir sálarlífs þeirra verða að lúta henni. Þeir neyta áfengis í blóra við það bezta í sjálfum þeim. Samvizka, ábyrgðartil- finning, dómgreind og vilji mega sín lítils eða einskis. Andleg heilsa þeirra er stórlega skert, þeir þjást af hægfara en langvinnri geðbilun. Þessum sjúklingum hefi eg kynnzt í tugatali tíðustu árin við starf mitt hér í Reykjavík. Eymd þeirra er vissulega mikil, en næstum enn tilfinnanlegri hafa mér oft fundizt hörmungar þær, sem ástand þeirra leiðir yfir venzlafólkið, — böm- in, eiginkonuna og foreldrana. Eg hefi áður lítillega ritað um ofdrykkju og þá sérstaklega reynt að glæða réttan skilning á öllum aðstæðum slíkra sjúklinga. Að þá sjálfa að jafnaði vantar tilfinningu fyrir eigin sjúkdómi, er ekkert furðulegt, hið sama á sér stað um marga aðra geð- sjúklinga. Hitt er skaðlegra og ófyrirgefanlegra, að allur almenningur vanmetur og misskilur ástand þessara sjúklinga af rótgrónum vana, og eiga þar hlut að jafnt lærðir sem leikir. 1 skjóli þessa skiln- ingsskorts þróast tómlæti það og vettlingatök, sem hingað til hafa einkennt drykkjuskaparvanda- málið. Að þessu sinni langar mig til að gera grein fyr- ir, hvernig eg hugsa mér bezt fyrir komið með- ferð drykkjusjúkra manna og vörnum gegn áfeng- issjúkdómum. Með því fyrirkomulagi yrði starf- semin skipulögð og sennilega undir einni yfir- stjórn, en annars þríþætt í framkvæmdinni. Og þessir þrír þaettir hennar eru: 1. Hjálparstöð. 2. Spítali eða spítaladeild. 3. Hæli. Þessi atriði skulu nú rædd nokkru nánar og þá einkum hið fyrst- nefnda. 1. Hjálparstöð. Komið verði á fót nú þegar vand- aðri, vel útbúinni hjálparstöð fyrir drykkjusjúk- linga. Skal hún gegna tvennskonar hlutverki, vera í senn lækningastöð og heilsuverndarstöð. Sjúkling- arnir munu leita til hennar um hjálp, af sjálfsdáð- um eða til knúðir af vandamönnum. Þar fá þeir læknisskoðun, heimilisástæður eru athugaðar og þeim gefnar leiðbeiningar um meðferð og nauðsyn- leg aðstoð veitt venzlafólkinu. Til þessarar stöðvar mundu einnig leita nauðstaddir ættingjar þeirra sjúkhnga, sem sjálfir reyndust ófúsir til að leita sér lækningar, og fengju þar fyrirgreiðslu mála sinna. En auk þessa mundi verkefni stöðvarinnar verða það, að leita sjálf uppi hvern einasta drykkjumann og sjá honum fyrir læknismeðferð, jafnvel án íhlutunar aðstandenda. Með því móti fengjust smám saman mjög áreiðanlegar skýrslur um f jöldatölu drykkjusjúklinga í landinu, — stað- tölur*) (statistik), sem til þessa hefir tilfinnanlega vantað, en mundu vega þungt á metaskálunum, þegar rætt er um drykkjuskap. Ýmsar aðrar upp- lýsingar og tölur, mikilvægar í félagslegu tilliti, mundi stöðin öðlast, t. d. um fjölda hama og ann- arra skjólstæðinga þessara sjúklinga, hag þeirra og heimilisháttu og tapaða vinnudaga. Við útvegun upplýsinga um drykkjumenn og verðandi drykkjumenn þyrfti stöðin að njóta sam- starfs annarra aðila, t. d. lögreglunnar, en einkum yrði náin samvinna að vera við aðrar greinar heilsuverndarstarfsins, svo sem barnaverndamefnd og mæðrahjálp. Gera má ráð fyrir, að frá stöð sem þessari, með jafn staðgóðri þekkingu á ástandinu í áfengismál- um þjóðarinnar, mundi beinast almenn fræðslu- starfsemi í heilsuverndarátt með ritgerðum og fyr- irlestrum. Auk þcss hlyti svo öflug hjálparstarf- semi sem þessi smám saman að skapa heilbrigð- ara viðhorf almennings til drykkjuskapar vfirleitt og þann veg óbeint verka sem vörn. Foreldrum mundi lærast að leita til stöðvarinnar, þegar þeir þættust sjá hættuna vofa vfir ungmennunum. Þótt erfitt sé um lækningu gerfallinna drvkkjumanna, er það oft árangursríkt verk að leiðbeina þeim, sem nýbvrjaður er á drykkjubrautinni, ef réttilega er að farið. Hið beina lækningastarf stöðvarinnar yrði fólg- ið í læknisrannsókn á sjúklingnum, mati á andlegu og líkamlegu ástandi hans og ráðleggingum í sam- ræmi við það, ásamt eftirliti með árangri. En ráð- in yrðu mismunandi og færu eftir ástæðum í hverju tilfelli. Er óþarft að fara út í það hér. Eg skal aðeins geta þess, að venjulega yrði það reynt fyrst, sem minnst truflaði daglegt líf sjúklingsins eða skerti frelsi hans. Honum yrði t. d. ráðlagt að *) Höf. þessa nýyrðis mun vera Vilm. Jónsson landlæknir. 1 □ B Y R P A

x

Syrpa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/1642

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.