Syrpa - 01.02.1947, Blaðsíða 45
Ég hefi í mörg ár verið samtíða sjúklingum, og
jafnan fundið mjög til þess, hve mörgum þeirra
leiðist sárlega. Dagarnir vilja verða langir og
daprir, þegar ekki er annað við tímann að gera
en að bíða eftir því að hann líði.
Mér hefur dottið í hug, hvort þetta tímarit gæti
ekki að einhverju litlu leyti reynt að bæta úr
þessu. Ég mun þessvegna í hverju hefti ætla eina
eða tvær blaðsíður undir dægrastyttingar, sem
henta rúmföstum jafnt og öðrum. Verður áherzla
lögð á hvort tveggja, það sem verða má til gagns
og gamans. En tilraunin kemur ekki að notum,
nema sjúklingarnir taki sjálfir þátt í henni. Þætti
mér því ákaflega vænt um, ef þeir vildu láta mig
vita, hvernig þeim líst á hana.
Gerið svo vel að skrifa mér nokkrar línur. Send-
ið mér nýjar hugmyndir, búið til gátur eða aðrar
þrautir, og síðast en ekki síst: Fylgist með brag-
fræðikennslu dr. Björns Sigfússonar og málhreins-
unarþáttum Bjarna Vilhjálmssonar, og sendið okk-
ur vísur og fyrrispurnir. Þó ekki kunni að vinn-
ast tími til að svara bréfum persónulega, verða þau
áreiðanlega öll lesin með eftirtekt og ánægju.
J. K.
P A P P I R
Hafið þið tekið eftir því, hve margt er hægt að
búa til úr pappír? Hann er líka efnið, sem hægast
er að afla sér, og minnst umstang útheimtir.
Krakkar geta unað sér tímum saman við að klippa
út allavega myndir úr einlitum eða mislitum bréf-
um, og ef þeim er leiðbeint skynsamlega, þá geta
þau haft ómetanlegt gagn af þessum leik síðarmeir,
því hann eykur bæði fegurðarsmekk og hagleik.
Og fullorðnir, sem komast upp á að glíma við papp-
ír, búa til úr honum ótrúlega fallega hluti, og
stytta sér með því marga stund. Fyrst um sinn
skulum við því fást við hann.
Hvernig væri að reyna að byrja einhvernveginn
svona?
Klippið niður pappatigla handa litlu krökkunum, og látið
þau raða þeim í allskonar myndir. Þegar þau stækka, þá
lánið þeim oddlaus skæri, og látið þau klippa tiglana sjálf.
S Y R P A
35