Syrpa - 01.04.1947, Síða 29
3. að hætt verði með öllu að láta einstaklingum og félögum
í té svokallaðar undanþáguheimildir til vínveitinga, og
4. að hætt verði að veita áfenga drykki í opinberum veizlum."
Jafnframt ritaði hún öllum félögum bæjarins svohljóðandi
bréf:
„Afengisvarnarnefnd kvenfélaga á Siglufirði skorar á öll fé-
lög í bænum að banna ölvuðum mönnum aðgang að skemmt-
unum sínum. Nefndinni er kunnugt um, að einstaka menn
hafa það svo að segja fyrir vana, að koma ölvaðir á skemmtanir,
fremja óspektir og eyðileggja skemmtun fyrir öðrum. Ef öll fé-
lög í bænum tækju höndum saman gegn þessu, myndi það á-
reiðanlega hverfa úr sögunni."
Nefndin hefur ennfremur leitað samstarfs við bæjarstjórn
Siglufjarðar um áfengisvarnir.
Á Ólafsfirði gekkst kvenfélagið „Æskan“ fyrir stofnun áfeng-
isvarnarnefndar. Formaður er frú Petra A. Jóhannsdóttir.
Stofnfundurinn samþykkti svofellda yfirlýsingu:
„Sameiginlegur fundur stjórnar Slysavarnarsveitar kvenna,
stjórnar verkakvennadeildar Olafsfjarðar og Áfengisvarnar-
nefndar Kvenfélagsins „Æskunnar" iýsir því hérmeð yfir, að
hann sé einróma fylgjandi tillögum og áskorunum Áfengis-
varnarnefndar kvenfélaga í Reykjavik og Hafnarfirði. Skorar
hann einnig á Alþingi og ríkisstjórn að sjá um, að Áfengis-
verzlun rxkisins verði lokað yfir fjóra mánuði ársins, eða frá
júlíbyrjun til októberloka. Skorar nefndin og á bæjarstjórn
Ólafsfjarðar að gera allt, sem unnt er, þessu máli til stuðnings."
Kvenfélagið á Stokkseyri hefur boðað hreppsnefnd og félags-
formenn í þorpinu á fund til þess að ræða áfengisvandamálið,
sérstaklega að þvi er skemmtanalíf þorpsins snertir. Bréf, sem
félagið ritaði þessum aðilum, endar svo:
„Keppum öll að því að fegra og betra samkvæmishættina, svo
að þeir, sem samkomur vilja halda hér í hreppi, fái ekki á sig
sóðaorð."*
Oll kvcnfélögin á Suðurnesjum hafa stofnað til samtaka með
sér, en það eru: Kvenfélag Keflavíkur, Kvenfélag Grindavikur,
kvenfélagið „Gefn“ í Garði, kvenfélagið „Fjóla" á Vatnsleysu-
strönd, kvenfélagið í Ytri-Njarðvíkum og kvenfélagið „Hvöt“ í
Sandgerði. Fulltrúafundur sendi Alþingi þessa áskorun:
„Fundur fulltrúa frá kvenfélögum Suðurnesja, haldinn í
Keflavík 23. apríl 1947, skorar á Alþingi að ákveða, að lögin
um héraðabönn komi til framkvæmda eins fljótt og auðið er.
Jafnframt mótmælir fundurinn eindregið fjölgun útsölustaða á
áfengi."
Við óskum þessum brautryðjendum innilega til hamingju!
Og önnur félög biðjum við um að feta í fótspor þeirra sem allra
fyrst. Biðið ekki til haustsins. Það hefur komið mjög greini-
lega í ljós upp á síðkastið, að full ástæða er til að gera Alþingi
skiljanlegt, að okkur er alvara, og að við munum ekki láta sitja
við orðin tóm. Frumvörp þau, sem liggja fyrir þinginu, áfeng-
ismálinu til úrbóta, virðast öll dauðadæmd, að frumvarpinu
um héraðabönn einu undanskildu. Og það sýnir glögglega hver
andi ríkir í þingsölunum þessu máli viðkomandi, að nú hefur
komið fram frumvarp, sem miðar að því að hleypa ótakmörk-
uðu áfengisflóði yfir landið. Er hér átt við frumvarp Sigurðar
Kristjánssonar um breytingti á áfengislögunum, þannig að ráð-
* Leturbreyting okkar.
herra verði veitt „heimild til að veita veitingahúsum veitinga-
leyfi á áfengum drykkjum.“
Við kölluðum saman fulltrúafund hinn 29. apríl s.l. til þess
að mótmæla þessari óhæfu. Var hann ágætlega sóttur og ein-
róma samþykkt að senda Alþingi svofelld mótmæli:
„Fundurinn lætur í ljós undrun sína yfir frumvarpi Sigurð-
ar Kristjánssonar á þingskjali nr. 680 um breytingu á áfengis-
lögunum, og skorar fastlega á Alþingi að fella það.
Fundurinn telur það liggja alveg í augum uppi, að breyting-
ar þessar mundu verða til þess að stórauka möguleika unglinga
til áfengisnautnar, og spilla almennu skemmtanalífi enn miog
frá því, sem þegar er orðið.
Frumvarp þetta virðist vera fram borið með það fyrir aug
um, að jafna misrétti, er orsakast af forréttindum Hótel Borgai
til vínveitinga. Sýnist fundinum beinasta og eðlilegasta leiðin
til þess að gera öllum veitingahúsum jafn hátt undir höfði i
þessu efni vera sú, að svipta Hótel Borg heimildinni til vín-
veitinga, og mælist eindregið til þess að Alþingi taki upp þetta
ráð.“
Bæjarstjórn Reykjavíkur var send eftirfarandi áskorun:
„Fundurinn skorar á bæjarstjórn Reykjavíkur að láta tillögur
Alfreðs Gíslasonar læknis, til úrbóta áfengisvandamálinu, koma
til framkvæmda hið allra fyrsta."
Samhljóða tilmæli voru send ríkisstjórninni. Loks var lög-
reglustjóranum i Reykjavík send þessi beiðni:
„Fundurinn skorar á lögreglustjórann í Reykjavík að taka
upp aftur vegabréf til handa almenningi, svo að hægra verðx
að framfylgja ýmsum þeim ákvæðum lögreglusamþykktarinnar,
sem miðuð eru við ákveðinn aldur.“
í útvarpserindi frú Aðalbjargar Sigurðardóttur, sem hún
flutti á vegum okkar, fór hún fram á það að kvenfélög landsins
sendu Alþingi áskoranir um héraðabönn og legðust á eitt um
að stuðla að því, að tillögur Afreðs Gíslasonar komist í fram-
kvæmd. Nú hefur bætzt við þriðja tilefnið: Frumvarp Sigurðar
Kristjánssonar. Mótmælið þvi! Látum Alþing finna, að það
stendur frammi fyrir vakandi þjóð.
Reykjavík, 1. maí 1947
F. h. Áfengisvarnarnefndar kvenfélaga í Rvík og Hafnarfirði
Kristin Sigurðardóttir, formaður.
☆
Slysið við Seley
í 1. hefti „Syrpu" birtist austfirzk saga, höfð eftir Jónasi
Gíslasyni. Um þessa sögu hefur Ásmundur Helgason frá
Bjaigi sent blaðinu athugasemd þá, sem hér fer á eftir:
LEIÐRÉTTING
í tímaritinu „Syrpu" er grein, sem segir frá sjóslysi, er
varð í Seleyjarálum í júlí 1876.
í greininni eru nokkrar missagnir, sem ég álít ekki rétt að
láta fara út á milli manna án þess að leiðrétta þær, því ég tel
mig hafa svo góðar heimildir fyrir því, hvernig það slys varð og
sú mannbjörg fór fram, að á betra verði ekki kosið.
Fimm missagnir eru í greininni, sumar all-veigamiklar:
SYRPA
107