Syrpa - 01.04.1947, Side 38
Hér kemur fyrsti uppdrátturinn af ábreiðu Jörundar Páls-
sonar, er sýnd var í heild í síðasta blaði. Framhald mun verða
í hverju hefti, tveir reitir í einu.
Uppdrátturinn er miðaður við íslenzkan „java“, 110 cm
breiðan, og 2 þræði í hverju spori. Gert er ráð fyrir, að ein-
hverjir kunni að vilja nota einstaka reiti á sessur eða annað
þess háttar, og er bekkurinn sýndur hér á blaðsíðunni á undan,
eins og hann yrði þá saumaður. I rammann er vandalaust að
sauma hvern hinna uppdráttanna sem er, þegar þar að kem-
ur; verður hann ekki sýndur aftur, svo að þeir, sem þetta hafa
í hyggju, ættu að geyma blaðið. Ef 3 þræðir eru hafðir í spori,
er stærðin hæfileg á sessu, en fallegt gæti einnig verið að
saunia myndina í rnjög smágert efni og hafa hana í miðju á
sessuborði.
Ef einhver kynni að vilja hafa bekk neðan við ábreiðuna
með nafni þess, sem saumar, ártali og einhverju til skrauts,
þá er rétt að gera ráð fyrir því, þegar efnið er keypt. Mun
uppdráttur af þessu verða sýndur síðar.
Kjósi menn að snúa ábreiðunni við, svo að hægt sé að hafa
hana þversum á vegg, er mjög vandalítið að gera það.
Af ásettu ráði er ekki leiðbeint um litaval, því að sjálfsagt
er að sá, sem saumar, hagi því eftir eigin smekk. Að öðrum
kosti hefur verkið minna gildi og ánægjan við vinnuna verður
miklu minni. Þó er sýnt með mismunandi sporum, hvar eðli-
legt væri að skipta um lit. Ýmsir munu vilja sauma ábreiðuna
með einum lit eða aðeins með litbrigðum, og verður engu
um það spáð, hvað bezt muni fara.