Morgunblaðið - 12.08.2021, Side 35

Morgunblaðið - 12.08.2021, Side 35
35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2021 Húsavík Strandveiðibátur kemur til hafnar á Húsavík og kirkjan fallega blasir við í bakgrunni. Hafþór Hreiðarsson Það er gömul saga og ný að stjórnvöld reynast mjög treg til að gefa eftir völd sem þau hafa tekið sér. Í viður- eigninni við faraldurinn sætti fólk víða um heim sig við að gengið yrði á frelsi einstaklinga vegna þess að um væri að ræða tímabundið ástand til að takast á við sameiginlega ógn. Í ljósi reynslunnar blasir við að stjórnvöld muni nú vilja nýta aukin völd sín í nýjum tilgangi. Það munu þau gera með vísan í loftslagsmál. Það er því tímabært að ræða hvort og þá hvernig þeim verði heimilað að beita auknum hömlum. Ef íslensk stjórnvöld gera það á grundvelli loftslagsstefnu undanfarinna ára mun það fela í sér mestu frelsis- skerðingu um áratuga skeið, minnk- andi framleiðslu, lífskjaraskerðingu og skila nákvæmlega engum árangri í loftslagsmálum. Ég geri ekki lítið úr mikilvægi um- hverfismála. Þau voru t.d. eina um- ræðuefni mitt í ræðu á fyrsta lands- þingi Miðflokksins. En umhverfismál eru líklega stærsta fórnarlamb hinna stórskaðlegu nýaldarstjórnmála þar sem allt snýst um umbúðir og yfirlýst markmið fremur en innihald og raunveruleg áhrif. Áður en ég vík að þeim aðferðum sem duga best er rétt að líta til þess sem er í vændum nú þegar stjórn- völd og aðrir munu færa vald sitt yfir daglegu lífi fólks frá sóttvörnum að umhverfismálum. Ný skýrsla Nefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (ICPP) hefur nú birt nýja skýrslu um þróun þeirra mála. Slíkar skýrslur eru ekki skrifaðar af fólki með mjög ólíkar skoðanir, frem- ur af aktívistum sem berjast fyrir til- teknum viðbrögðum. Þrátt fyrir það hafa skýrsluhöfundar gert athuga- semdir við hvernig innihaldið hefur verið túlkað og sett fram í fjölmiðlum. Lík- lega hafa þeir sem eru yfirlýsingaglaðastir um innihald skýrslunnar ekki lesið hana enda er hún rúmlega 4.000 síð- ur að lengd. Ólesin hefur skýrsl- an verið gripin fegins hendi og notuð sem rökstuðningur fyrir þeim heimsendaspám sem haldið var mjög á lofti þar til þær féllu í skugga veirunnar um sinn. Í hvert skipti sem verða ham- farir tengdar veðurfari eru þær tengdar við loftslagsbreytingar (sem nýaldarpólitíkusar vilja nú gefa nýtt nafn að hætti Orwells og kalla „ham- farahlýnun“). Þótt popúlistar stökkvi á alla slíka atburði og telji þá tilefni til að veita stjórnvöldum aukin völd til að hefta framþróun og skerða frelsi almennings gleymist alltaf eitt mikilvægt atriði. Það atriði kallast samhengi. Samhengið Björn Lomborg hjá rannsókna- veitunni Copenhagen Consensus hefur verið ötull við að setja hlutina í samhengi og fá stjórnmála- og emb- ættismenn til að líta á heildarmynd- ina og hvernig best megi nýta fjár- magn til að bæta líf fólks. Björn og félagar eru engir sérvitringar og hafa aldrei efast um mikilvægi þess að minnka losun gróðurhúsaloftteg- unda. Þetta eru afburðafræðimenn á sínu sviði sem hvetja einfaldlega til þess að litið verði til staðreynda og heildaráhrifa. Þeir hafa útskýrt að núverandi aðferðir muni skila nánast engum árangri og bent á betri leiðir til að bæta líf framtíðarkynslóða. Öll vinna þeirra byggist á opinberum gögnum og ekki síst skýrslum ICPP og loftslagslíkönum Sameinuðu þjóð- anna. Með vísan í opinber gögn hefur Björn sýnt fram á að tíðni náttúru- hamfara sem tengja má veðurfari hafi síður en svo aukist (þótt veður- farsbreytingar geti haft áhrif). Einn- ig það að þrátt fyrir gríðarlega fjölg- un mannfólks og mjög aukna byggð á þeim svæðum sem líklegust eru til að verða fyrir áhrifum veðurfars- tengdra hamfara sé fjöldi þeirra sem látast af slíkum völdum aðeins brot af því sem áður var. Fjöldinn hefur fallið um meira en 99% á einni öld. Framfaraþrá og vísindaleg nálgun hafa skilað mannkyninu gríðarlegum árangri. Það er því mikið áhyggju- efni ef því verður nú fórnað á altari öfgahyggju sem lítur á manninn sem vandamál fremur en uppsprettu lausna og framfara. Þótt hamfarir tengdar veðurfari hafi oft verið tíðari en nú og mannfall margfalt meira liggur munurinn í því að nú birtist hvert slíkt tilvik á for- síðum blaða og vefmiðla og sem stærstu fréttir í sjónvarpi. Það er svo iðulega skilgreint sem sönnun á boð- skap heimsendaspámanna og spárn- ar aðlagaðar eftir á. Hver atburður verður áminning um að heimsendir sé á næstu skrælnuðu grösum. Heimsendaspár 1972 varaði Maurice Strong, fyrsti yfirmaður umhverfisstefnu SÞ, við því að við (mannkynið) hefðum bara 18 ár til að koma í veg fyrir umhverf- ishamfarir sem yrðu eins viðvarandi og útrýming af völdum kjarnorku- styrjaldar. Síðan þá hafa eftirmenn hans reglulega fært endapunktinn en jafnan gefið heiminum 5-10 ár. Ákafamenn hafa svo nýtt þetta til að boða yfirvofandi heimsendi. E.t.v. telja einhverjir þetta nauð- synlegt til að reyna að hafa áhrif á fólk og stefnu stjórnvalda (tilgang- urinn helgi meðalið). En er það skyn- samlegt? Er skynsamlegt að nálgast þetta stóra viðfangsefni út frá öfga- trú, spá heimsendi, ýta stöðugt undir ótta, ráðast af offorsi á gagnrýn- endur og varpa fram yfirborðs- kenndum lausnum? Ég held ekki. Ég tel umhverfismál mikilvægari en svo að það sé hægt að eftirláta þau öfgahyggju nýaldar- stjórnmálanna. Þessi mál, eins og önnur stór viðfangsefni sem mann- kynið hefur tekist á við, verða ekki leyst öðruvísi en með skynsemis- hyggju, rökræðu og vísindalegum framförum. Stefna íslenskra stjórnvalda Stjórnvöld víða á Vesturlöndum hafa ofurselt sig ímyndarnálguninni í loftslagsmálum sama hvað það kost- ar. Þegar bresk stjórnvöld sam- þykktu markmið um kolefnis- hlutleysi fyrir árið 2050 upplýsti þáverandi fjármálaráðherra að það myndi kosta talsvert yfir 1.000 millj- arða punda að ná markmiðinu (yfir 175.000.000.000.000 krónur). Síðar var sú tala álitin vanáætluð. Fyrir slíka peninga væri hægt að ná mikl- um framförum og bæta líf margs fólks. Loftslagsáætlun íslensku ríkis- stjórnarinnar gerir ráð fyrir að land- ið setji met í samdrætti losunar þrátt fyrir að við höfum minna svigrúm en nokkurt annað land til að minnka los- un í ljósi þess að við erum nú þegar með hæsta hlutfall endurnýjanlegrar orku. Það að tilkynna einhliða að far- ið verði umfram umsamin markmið veikir auk þess samkeppnisstöðu okkar og möguleika á að ýta undir minni losun annarra. Í loftslagsáætluninni birtist víða nokkuð opinskátt mat og talsmenn stefnunnar hafa á stundum verið hreinskilnir um aðferðirnar. Flestir ráðherrar hafa þó forðast að ræða hvað þurfi til. Afleiðingarnar Það er í öllu falli ljóst að ekki er hægt að ná markmiðinu nema með því að draga úr framleiðslu innan- lands, hækka skatta og gjöld á al- menning og leggja á nýja til að stýra neysluhegðun og hefta ferðafrelsi. Minnka landbúnað, draga úr fjölda ferðamanna og fækka ferðum Ís- lendinga til útlanda. Minni fram- leiðslu og neyslu má svo augljóslega endurorða sem lakari lífskjör. Störf og framleiðsla munu í aukn- um mæli færast frá Vesturlöndum til Kína og annarra vaxandi efnahags- svæða. Allt þetta leiðir til aukinnar misskiptingar þar sem færri hafa efni á að reka og eiga bíl, ferðast eða kaupa ýmsar vörur. Það verður ekki leyst með grænum styrkjum (sem að mestu hafa farið í að niðurgreiða dýra bíla) eða nýjum „grænum“ há- tæknistörfum. Lausnir Vesturlönd hafa dregið úr eigin losun með því að færa framleiðslu til landa sem framleiða vörurnar með kolabruna. Ef álframleiðsla flyttist frá Íslandi til Kína myndi losun nærri tífaldast. Raunin er sú að það er best fyrir loftslagsmál heimsins að við fram- leiðum sem mest á Íslandi. Eftir- spurn eftir vörum og lífsgæðum mun bara aukast í heiminum. Milljarðar manna vilja að sjálfsögðu vinna sig upp úr fátækt og skert lífskjör á Ís- landi eða annars staðar á Vestur- löndum munu ekki koma í veg fyrir það. Það er ekki hægt að hverfa af braut framfara. Þvert á móti, við þurfum að leysa loftslagsmálin eins og önnur stór viðfangsefni, með vís- indum og annarri mannlegri hug- kvæmni. Á því sviði eigum við Ís- lendingar mikil tækifæri ef við látum ekki heimsendaspámenn og aftur- haldsöfl stöðva okkur. Heimurinn þarf miklu meiri end- urnýjanlega orku. Þar getur Ísland gert ótrúlega hluti og þarf að nýta tækifærin betur. Það mun þýða að losun landsins aukist í stað þess að minnka en á heimsvísu mun það draga úr losun, reynast það besta sem við getum gert í loftslagsmálum og bæta lífskjör Íslendinga. Eftir Sigmund Dav- íð Gunnlaugsson » Loftslagsáætlun ís- lensku ríkisstjórnar- innar gerir ráð fyrir að landið setji met í sam- drætti losunar þrátt fyr- ir að við höfum minna svigrúm en nokkurt annað land til að minnka losun í ljósi þess að við erum nú þegar með hæsta hlutfall endurnýj- anlegrar orku. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er formaður Miðflokksins. Öfgar og heimsendaspár leysa ekki loftslagsmálin Á vefsíðu Stjórnar- ráðsins er að finna upp- lýsingar um réttar- farsnefnd. Fram kemur að dómsmálaráðherra skipi hana. Hún hafi það hlutverk að vera ráðherra til ráðgjafar á sviði réttarfars, m.a. þegar samin eru frum- vörp og aðrar reglur á því sviði í samræmi við áætlun og áherslur ráð- herra. Þá er gert ráð fyrir að nefndin veiti umsagnir um frumvörp og aðrar tillögur sem varða réttarfar. Ljóst er að þessi verkefni flokkast undir framkvæmdarvald, þ.e. svo- nefnd stjórnsýsluverkefni. Á lögmæti þeirra kann að reyna í dómsmálum. Í pistlinum um nefnd þessa á vef- síðunni kemur fram að þrír af fimm nefndarmönnum koma nú úr röðum skipaðra dómara við Hæstarétt. Tveir þeirra sátu í nefndinni þegar þeir voru skipaðir dómarar á síðasta vetri en sáu ekki ástæðu til að segja af sér þessum stjórnsýslustörfum við það tækifæri. Sá þriðji er núverandi forseti Hæstaréttar. Hann er ekki talinn líklegur til að afsala sér bitl- ingum sem honum hafa verið fengn- ir. Skipunartími núverandi nefnd- armanna er til 28. febrúar nk. Flestum hugsandi mönnum ætti að vera ljóst að ekki er við hæfi að dómarar við æðsta dómstól þjóð- arinnar séu skipaðir til að veita ráðherra aðstoð við stjórnsýslu dóms- mála. Þetta er ómur lið- ins tíma. Væri ekki ráð að nú- tímakonan, sem nú gegnir embætti dóms- málaráðherra, óskaði eftir að hæstarétt- ardómararnir í réttar- farsnefnd segðu af sér þessum störfum hið bráðasta? Að minnsta kosti muni hún gæta þess við endurnýjun á mannvali í nefnd- ina eftir næstu áramót að skipa þetta fólk ekki aftur í þessa nefnd. Fróðlegt væri að heyra að minnsta kosti viðhorf hennar til þessa málefnis. Kannski Mogginn láti henni í té rými til þess? Dómarar aðstoða ráð- herra við stjórnsýslu Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson Jón Steinar Gunnlaugsson » Væri ekki ráð að nú- tímakonan, sem nú gegnir embætti dóms- málaráðherra, óskaði eft- ir að hæstaréttardóm- ararnir í réttarfarsnefnd segðu af sér þessum störfum hið bráðasta? Höfundur er lögmaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.